
Tæknimaður í samsetningu og framleiðslu
(Assembly & Production Technician)
Hefur þú áhuga á vélbúnaði, tæknilegum áskorunum og að smíða hátæknibúnað sem er notaður um allan heim?
Thor Ice Chilling Solutions leitar að handlögnum og úrræðagóðum einstaklingi til starfa við samsetningu, prófanir og framleiðslu á hátæknibúnaði fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi með góða verklega reynslu, tæknilegan skilning og áhuga á fjölbreyttum verkefnum þar sem vélbúnaður, lagnir, rafmagn og sjálfvirkni mætast.
Starfið er fjölbreytt og býður upp á tækifæri til að taka þátt í framleiðslu og þróun sérhæfðra tæknilausna sem eru afhentar viðskiptavinum víða um heim.
- Vélræn samsetning á vélum, tækjabúnaði og undirkerfum Thor Ice.
- Uppsetning og tenging á lögnum, lokum, loftstýringum og öðrum vélrænum íhlutum.
- Uppsetning á skynjurum, rafbúnaði og stýribúnaði í samstarfi við tækniteymi fyrirtækisins.
- Samsetning eftir tækniteikningum, samsetningarleiðbeiningum og verklýsingum.
- Prófanir, yfirferð og gæðaskoðun á búnaði fyrir afhendingu.
- Þátttaka í þróun og endurbótum á búnaði og framleiðsluferlum.
- Almenn verkstæðis- og framleiðslustörf tengd smíði og samsetningu hátæknibúnaðar.
- Menntun og/eða verkleg reynsla á sviði vélvirkjunar, vélstjórnar, rafvirkjunar, málmiðnaðar eða sambærilegra tæknigreina.
- Reynsla af vélrænni samsetningu, viðhaldi eða smíði á tækja- og vélbúnaði.
- Góð verkleg færni og hæfileiki til að vinna með fjölbreytt verkfæri og tæknibúnað.
- Hæfni til að lesa og vinna eftir tækniteikningum.
- Nákvæmni, vandvirkni og metnaður fyrir góðum frágangi.
- Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
Það er kostur að hafa
- Reynslu af samsetningu iðnaðarvéla eða sjálfvirknibúnaðar.
- Þekkingu á loftstýringum (pneumatics), lokum og lagnakerfum.
- Reynslu af rafmagnstengingum, skynjurum og stýribúnaði.
- Þekkingu á kælitækni, dælum og vökvakerfum.
- Reynslu af ryðfrírri smíði, málmsmíði eða lagnavinnu.
- Reynslu af prófunum og gangsetningu vélbúnaðar.
Thor Ice er íslenskt hátæknifyrirtæki sem hannar, þróar og framleiðir nýstárlegar ískrapakælilausnir fyrir alþjóðlegan matvælaiðnað, með sérstaka áherslu á alifuglavinnslu.
Lausnir fyrirtækisins sameina vélbúnað, kælitækni, sjálfvirkni og hugbúnað og stuðla að bættri framleiðni, auknu matvælaöryggi og minni sóun. Thor Ice starfar á alþjóðlegum markaði og vinnur með stórum matvælaframleiðendum víða um heim.
- Fjölbreytt og krefjandi starf hjá íslensku hátæknifyrirtæki með alþjóðlega starfsemi.
- Tækifæri til að vinna við smíði og samsetningu sérhæfðs hátæknibúnaðar.
- Náin samvinna við hönnunar-, þróunar- og tækniteymi fyrirtækisins.
- Tækifæri til faglegrar þróunar og aukinnar ábyrgðar.
- Góðan vettvang til að nýta verklega reynslu og hafa áhrif á útfærslu og endurbætur búnaðar.
Íslenska
Enska










