

Rekstur og viðhald á Mývatnssvæði
Viltu vakta auðlindina?
Við hjá Landsvirkjun vinnum að því að tryggja sjálfbæra og örugga orkuvinnslu til að mæta þörfum samfélagsins og styðja við orkuskipti. Við leitum að vélfræðingi til að ganga til liðs við öflugt teymi rekstrar og viðhalds á Mývatnssvæði.
Á svæðinu rekum við þrjár jarðvarmastöðvar; Kröflustöð, Þeistareykjastöð og Gufustöðina í Bjarnarflagi. Starfið er fjölbreytt og felst meðal annars í rekstri, eftirliti og viðhaldi aflstöðva og veitumannvirkja. Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á rekstri og viðhaldi orkumannvirkja, er lausnamiðaður og á gott með að vinna með öðrum.
Unnið er á vöktum.
Við hverju má búast?
- Ábyrgð á rekstri og viðhaldi jarðvarmastöðva á Mývatnssvæði
- Eftirliti og viðhaldi loft-, véla-, vökva- og rafkerfa
- Þátttöku í ástandsmælingum og greiningu á búnaði
- Notkun stjórnkerfa og teikninga við bilanaleit og úrbætur
- Samvinnu við samstarfsfólk og aðra hagsmunaaðila til að tryggja öruggan og áreiðanlegan rekstur
Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu?
- Vélfræðimenntun
- Þekkingu á viðhaldi loft-, véla-, vökva- og rafkerfa
- Reynsla af störfum tengdum raforkuvirkjum eða iðnaði er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að tileinka þér nýjungar
- Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum
- Góða tölvukunnáttu
Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?
Landsvirkjun er vinnustaður þar sem öryggi og vellíðan starfsfólks er í forgangi. Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Í teyminu okkar færðu tækifæri til að vinna að metnaðarfullum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi og menningu, þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað vekur áhuga þinn á starfinu. Fyrirspurnir má senda á [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember.
Íslenska










