Vélrás
Vélrás

Starfsmaður í tjónadeild

Hefur þú reynslu af bifreiðum og áhuga á tjónamálum?
VélRás óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling til starfa við tjónamat og utanumhald tjónaviðgerða. Starfið hentar vel þeim sem hafa reynslu eða þekkingu á bifreiðum, bílamálun, bifreiðasmíði, viðgerðum eða öðrum tæknilegum störfum tengdum ökutækjum og vilja þróa sig áfram á nýjum vettvangi.

Í starfinu gefst tækifæri til að vinna með sérhæfð tjónamatskerfi, eiga samskipti við tryggingafélög og taka þátt í að skipuleggja og fylgja eftir viðgerðum á fjölbreyttum ökutækjum og búnaði.

VélRás rekur eitt stærsta verkstæði landsins og sinnir viðgerðum og þjónustu á atvinnubifreiðum, rútum, eftirvögnum og vinnuvélum ásamt tjónaviðgerðum fyrir tryggingafélög.

Helstu verkefni og ábyrgð

•    Gerð tjónamata í CABAS og CABAS Heavy
•    Samskipti við tryggingafélög vegna tjónamála
•    Skráning og utanumhald verkefna
•    Eftirfylgni með tjónaviðgerðum
•    Samskipti við viðskiptavini og upplýsingagjöf um framvindu mála
•    Samstarf við verkstæðisformenn og tæknimenn
•    Þátttaka í þróun og bætingu verkferla

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Reynsla eða þekking á bifreiðum, tækjum eða viðgerðum
•    Bakgrunnur í bílamálun, bifreiðasmíði, bifvélavirkjun eða sambærilegu er kostur
•    Áhugi á tjónamálum og tæknilegri úrlausn verkefna
•    Góð tölvukunnátta og geta til að læra ný kerfi
•    Góð samskiptahæfni og þjónustulund
•    Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð

Auglýsing birt9. október 2026
Umsóknarfrestur22. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Álhella 4, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar