
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar framleiðir rafmagn og heitt vatn í jarðhitavirkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum ásamt framleiðslu rafmagns með vatnsafli í Andakílsárvirkjun.
ON er stærsta jarðvarmafyrirtæki landsins og selur rafmagn til fyrirtækja og heimila um allt land en framleiðir heitt vatn til sölu og dreifingar hjá systurfélagi þess, Veitum.
ON er dótturfélag Orkuveitunnar sem er í eigu Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar.
ON framleiðir ekki bara umhverfisvæna orku fyrir heimili, fyrirtæki og farartæki heldur leggur fyrirtækið einnig ríka áherslu á rannsóknir, nýsköpun og sjálfbærni með það fyrir augum að tryggja komandi kynslóðum betri lífsgæði.

Við leitum að öflugum liðsfélaga í gufuveitu
Við leitum að öflugum liðsfélaga í gufuveitu.
Við leitum að jákvæðum og drífandi liðsfélaga í gufuveitu Orku náttúrunnar.
Hjá okkur er enginn dagur alveg eins og hlutverkið hentar sérstaklega vel þeim einstaklingum sem hafa gaman af tæknilegum verkefnum, vilja vinna með höndunum og njóta sín í góðu samstarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hvað felst í starfinu?
- Eftirlit, rekstur og viðhald búnaðar og kerfa
- Fjölbreytt verkefni tengd gufuveitu
- Bilanagreiningar
- Samvinna með öflugu viðhalds- og verkstæðisteymi
- Þátttaka í að bæta verklag, öryggi og áreiðanleika búnaðar
Menntunar- og hæfniskröfur
Hvað þarf til að ná árangri í starfinu?
Við leitum að einstakling sem hefur áhuga á að starfa í fjölbreyttu starfsumhverfi og vinnur verk sín af fagmennsku.
Á meðal þeirrar færni og eiginleika sem við leitum eftir eru:
- Handlagni og lausnamiðað hugarfar
- Rík öryggisvitund, hæfni til að meta áhættu og að vinna samkvæmt öryggis- og umhverfiskröfum
- Áhugi á vélum, lögnum og tæknilegum búnaði
- Áhugi á rekstri og viðhaldi
- Sjálfstæði í starfi og hæfni til að taka þátt í góðu samstarfi
- Vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni innan og utan dyra við ólíkar aðstæður
- Samskiptafærni, frumkvæði og útsjónarsemi
- Iðnmenntun og/eða reynsla af vélbúnaði er kostur en áhugi og rétt viðhorf skipta okkur líka miklu máli.
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.
Auglýsing birt28. október 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Nesjavallavirkjun 170925, 801 Selfoss
Hellisheiðarvirkjun
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFljót/ur að læraFrumkvæðiMannleg samskiptiMetnaður
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Reyndur pípari óskast til starfa
Aðallagnir

Starfsmaður í framleiðslu og merkingar
Signa ehf

Sérfræðingur í sjónrænni gæðaskoðun / Visual Inspection Technologist
Alvotech hf

Starf í framleiðslu
Fóðurblandan

Framtíðarstarf á lager
Tandur hf.

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki óskast 🔧
Íslenska gámafélagið ehf.

Framtíðarstarf í vöruhúsi TDK Foil Iceland ehf, Akureyri
TDK Foil Iceland ehf

Starfsmaður á þjónustustöð Selfossi
Vegagerðin

Þjónustumiðstöð Kópavogs leitar að öflugum og sjálfstæðum iðnaðarmanni
Þjónustumiðstöð Kópavogs

Handlaginn Verkamaður / Workshop fabrication
Glerverk

Viðgerðarmaður / vörubílstjóri
Stéttafélagið ehf.

CNC starfsmaður í frumgerðarsmíði / CNC Machinist
Embla Medical | Össur