Þjónustumiðstöð Kópavogs
Þjónustumiðstöð Kópavogs
Þjónustumiðstöð Kópavogs

Þjónustumiðstöð Kópavogs leitar að öflugum og sjálfstæðum iðnaðarmanni

Þjónustumiðstöð Kópavogs leitar að öflugum og sjálfstæðum iðnaðarmanni til að hafa umsjón með rekstri tækjaverkstæðis sem sér um viðhald bifreiða, vinnuvéla og annars tækjabúnaðar.

Um er að ræða fjölbreytt ábyrgðarstarf þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. Starfsmaður ber ábyrgð á daglegum rekstri tækjaverkstæðisins og hefur það að markmiði að tryggja öruggan, hagkvæman og áreiðanlegan rekstur tækjaflota Þjónustumiðstöðvar.

Starfið er fjölbreytt og felur í sér bæði verklega vinnu og sjálfstæða umsjón með rekstri tækjaverkstæðis. Starfsmaður gegnir lykilhlutverki við að tryggja að bifreiðar, vinnuvélar og annar tækjabúnaður Þjónustumiðstöðvar séu ávallt í góðu og öruggu ástandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegum rekstri, skipulagi og starfsemi tækjaverkstæðis Þjónustumiðstöðvar.
  • Sinnir almennri þjónustu, eftirliti, léttu viðhaldi og minniháttar viðgerðum á bifreiðum, vinnuvélum og öðrum tækjabúnaði.
  • Metur viðhalds- og viðgerðarþörf tækja og tekur sjálfstæðar ákvarðanir um nauðsynlegar viðgerðir og þjónustu.
  • Skipuleggur og hefur eftirlit með reglubundnu og fyrirbyggjandi viðhaldi bifreiða, vinnuvéla og tækjabúnaðar.
  • Annast samskipti við utanaðkomandi bifreiða- og vélaverkstæði, pantar viðgerðir og fylgir eftir framkvæmd þeirra.
  • Sér til þess að bifreiðar og tæki fari í lögbundnar skoðanir á réttum tíma og að brugðist sé við athugasemdum.
  • Hefur umsjón með verkfærum, varahlutum, rekstrarvörum og öðrum búnaði tækjaverkstæðisins.
  • Heldur utan um skráningar vegna viðhalds, viðgerða, skoðana og rekstrar tækjaflotans.
  • Vinnur með yfirmanni að árlegri áætlun um endurnýjun bifreiða, vinnuvéla og annars tækjabúnaðar, meðal annars með mati á ástandi, viðhaldskostnaði og endurnýjunarþörf.
  • Sinnir öðrum verkefnum sem tengjast starfsemi Þjónustumiðstöðvar eftir því sem við á.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun í bifvélavirkjun, vélvirkjun eða sambærilegri iðngrein sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af viðhaldi og viðgerðum bifreiða, vinnuvéla og tækjabúnaðar.
  • Hæfni til að skipuleggja verkefni, forgangsraða og taka sjálfstæðar ákvarðanir.
  • Ökuréttindi eru skilyrði.
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði.
  • Aukin ökuréttindi og vinnuvélaréttindi eru kostur.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og rík ábyrgðartilfinning.
  • Vandvirkni og skipulögð vinnubrögð.
Fríðindi í starfi
  • Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
  • Styttri vinnuvika.
  • Íþróttastyrkur
  • Hádegismatur á staðnum
Auglýsing birt26. október 2026
Umsóknarfrestur9. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Askalind 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar