
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf) er umboðs- og dreifingaraðili fyrir vörumerkin Leapmotor, Jeep, RAM, Fiat, Fiat Professional, Alfa Romeo, Chrysler og Dodge á íslandi. Hjá ÍSBAND eru nú um 40 stöðugildi. Söludeild er staðsett í Þverholti 6 í Mosfellsbæ.
ÍSBAND bílaverkstæði sinnir ofantöldum vörumerkjum sem og 33"-40" breytingum á Jeep og RAM. Varahlutaverslunin flytur inn varahluti frá ofangreindum vörumerkum, öðrum USA merkjum og aukahluti. ÍSBAND er umboðsaðili fyrir AEV, Teraflex, Falcon, ARE og Bakflip. Verkstæði og varahlutaverslun eru í rúmgóðu húsnæði að Smiðshöfða 5, 110 Reykjavík þar sem góð aðstaða er til að taka á móti stórum pallbílum og húsbílum.

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast
Hefur þú áhuga á jeppum og breytingum?
ÍSBAND leitar að starfsmanni til að sinna jeppabreytingum á verkstæðinu okkar að Smiðshöfða 5 í Reykjavík.
Starfið felst í breytingum á Jeep® og RAM. Breytingarnar eru staðlaðar 35" - 40" og vinnum með breytingapökkum frá þekktum framleiðendum á borð við AEV, TeraFlex og Falcon. Ekki er um að ræða sérsmíði eða stærra en 40" breytingar.
Erum bæði að leita að vönum breytingarmönnum og eins þeim sem vilja læra jeppabreytingar.
Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- 35" - 40" breytingar á Jeep® og RAM
- Ásetning brettakanta
- Minniháttar úrklippingar
- Ásetning aukabúnaðar s.s. dráttarbeisli, loftdælu, úrhleypibúnað, gangbretti o.s.frv.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af jeppabreytingum er kostur
- Bifvélavirki eða bifreiðasmiður er kostur
- Góð samskiptahæfni og færni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Ökuréttindi eru skilyrði
- C1 bílpróf (pallbílapróf) er kostur
Auglýsing birt22. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Smiðshöfði 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiBifreiðasmíðiBifvélavirkjunSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Tæknimaður í samsetningu og framleiðslu
Thor Ice Chilling Solution

Tæknimaður á upplýsingatæknisvið
VHE

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Starfsmaður á verkstæði: Bifvélavirki / vélvirki
Intellecta

Vélvirki / Vélstjóri / Bifvélavirki
Stólpi

FJÖLHÆFUR STARFSMAÐUR ÓSKAST TIL MOLTU
Molta ehf.

Viðgerðarmaður / vörubílstjóri
Stéttafélagið ehf.

Lagerstarfsmaður
Hirzlan

Verkstæðismóttaka og varahlutir
IB ehf

Bifvélavirki á ferð
BL ehf.

Bifvélavirki, skoðunarmaður
Aðalskoðun hf.

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Sauðárkróki
Frumherji hf