
VHE
VHE er fjölskyldufyrirtæki, stofnað 1971 og hefur starfsstöðvar í Hafnarfirði, á Egilsstöðum og á Reyðarfirði.
Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 200 manns við hin ýmsu störf og erum við mjög stolt af þekkingu starfsmanna okkar og reynslu.
VHE er framsækið fyrirtæki á véla- og Mannvirkjasviði, við bjóðum upp á ítarlegar lausnir í hönnun, framleiðslu og þjónustu fyrir viðskiptavini okkar, má þar nefna sérhæfðar lausnir fyrir stóriðju, iðnað, orkufyrirtæki og mannvirkjagerð.
Konur sem karlar eru hvött til að sækja um öll auglýst störf hjá fyrirtækinu.
Umsóknir eru meðhöndlaðar með trúnaði.

Tæknimaður á upplýsingatæknisvið
VHE ehf. leitar að tæknimanni til starfa á upplýsingatæknisvið fyrirtækisins í Hafnarfirði.
Starfið felst að mestu leyti í þjónustu við starfsmenn VHE og annarra fyrirtækja, m.a. við:
- Windows stýrikerfið í fyrirtækjaumhverfi
- Microsoft hugbúnað og aðrar hugbúnaði, bæði hefðbundna og sértæka
- Uppsetningu á tölvum, spjöldum, símtækjum o.þ.h.
- Viðgerðir og viðhald á vélbúnaði
- Notendur, netkerfi og öryggislausnir
Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni á sviði kerfisrekstrar, netkerfa, skýjalausna og upplýsingaöryggis. Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað til að taka aukna ábyrgð á tæknilegum innviðum, þróun lausna og framtíðaruppbyggingu upplýsingatæknisviðs fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í kerfisstjórnun, tölvunarfræði eða sambærilegri grein sem nýtist í starfi
- Viðeigandi fagvottanir á sviði Microsoft -skýjaþjónustu, kerfisstjórnunar, aðgangsstýringar eða netrekstrar
- Reynsla af kerfisstjórnun í Microsoft 365, Entra ID og Active Directory, auk góðrar þekkingar á Azure, Intune, auðkenningu, réttindastýringu og tækjarekstri
- Reynsla af sjálfstæðri úrlausn flókinna mála, tæknilegri leiðsögn og samstarfi við þjónustuaðila
- Geta til að bregðast við breytingum og aðlagast breyttum aðstæðum, auk þess að nýta tækniframfarir til að bæta rekstur og þjónustu
- Þjónustulund, góð samskiptahæfni og vilji til að miðla þekkingu
- Góð íslenskukunnátta og færni í ensku til tæknilegra samskipta og upplýsingaöflunar
þekking á Linux,php, laravel er kostur - Reynsla á notkun AI
Fríðindi í starfi
- Heilsubótastyrkir
- Mötuneyti
- Fræðslustefna
- Endurmenntunarstyrkur
Auglýsing birt22. október 2026
Umsóknarfrestur12. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Melabraut 27, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Við leitum að kerfisstjóra!
Myllan

Tæknimaður í samsetningu og framleiðslu
Thor Ice Chilling Solution

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Notendaþjónusta - Internal support
Icelandair

Sérfræðingur í netkerfum
Advania

Senior Network Engineer – Datacenter & Cloud Networking
1984 ehf

Senior Linux Systems Engineer
1984 ehf

Senior Storage Engineer – Ceph / Distributed Storage
1984 ehf

Kerfisstjóri
Hafnarfjarðarbær

Móttaka á verkstæði
Aflvélar ehf.

Tæknimaður í afgreiðslulausnum
Wise lausnir ehf.