

Notendaþjónusta - Internal support
***English below***
Icelandair leitar að lausnamiðuðum, drífandi og kraftmiklum einstaklingi í notendaþjónustu með staðsetningu í Keflavík.
Starfið tilheyrir Digital Operations, sem hefur það hlutverk að styðja við rekstur félagsins með sveigjanleika, hagræðingu og tækifæri að leiðarljósi.
Þjónustan snýr að því að veita starfsmönnum Icelandair daglega þjónustu í Keflavík t.d. ýmis tölvuaðstoð, uppsetningu á tölvum, aðstoð við kerfi ásamt því að sinna almennri þjónustu við starfsmenn.
Við leitum að einstaklingi sem er þjónustulundaður, hefur reynslu af þjónustu við tæknibúnað ásamt því að þekkja til helstu skrifstofukerfa, eins og Office365.
Ábyrgðarsvið:
- Dagleg notendaþjónusta og kerfisumsjón
- Uppsetning og viðhald á tölvum og öðrum tækjabúnaði
- Svara útköllum og bilanatilkynningum
- Þátttaka í tilfallandi verkefnum
Hæfni og menntun:
- Góð samskiptahæfni, jákvæðni, þjónustulund, sveigjanleiki og frumkvæði
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Microsoft vottun og tengd menntun sem nýtast í starfi eru kostur
- Þekking á Office 365 og Active Directory er kostur
- Góð færni til að greina og finna lausnir
- Geta til að vinna sjálfstætt og undir álagi
Umsóknir óskast ásamt ferilskrá og kynningarbréfi eigi síðar en 2. nóvember 2026
Nánari upplýsingar veita:
Birta Ósk Gunnarsdóttir, Manager Internal Customer & Support, [email protected]
Guðlaug Ólafsdóttir, People manager, [email protected]
Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
***
Icelandair is seeking a solution-oriented, proactive, and energetic individual to join Internal Support team, based in Keflavík. The position is part of Digital Operations, a team dedicated to supporting the company's operations with a focus on flexibility, efficiency, and seizing opportunities.
The role involves providing daily support to Icelandair employees in Keflavík, including computer troubleshooting, workstation setup, system support, and general employee assistance.
We are looking for a service-minded individual with experience supporting IT equipment and a good understanding of common office applications and systems, including Microsoft 365.
Responsibilities:
- Daily user support and system administration
- Installation and maintenance on computers and other devices
- Provide on-location service to users and respond to raised issues
- Support in ad-hoc projects
Qualifications:
- Strong communication skills, positivity, service-orientation, and flexibility
- An education fit for the role
- Knowledge of Office 365 and Active Directory
- Microsoft (and other technical) certifications are beneficial
- An ability to troubleshoot, analyze and solve problems
- Ability to work independently and under pressure
Please submit your application along with a CV and cover letter no later than November 2nd. 2026
For further information, please contact:<br>Birta Ósk Gunnarsdóttir, Manager Internal Customer & Support, [email protected]
Guðlaug Ólafsdóttir, People Manager, [email protected]
In accordance with the equal rights policy of Icelandair, all applicants regardless of gender are encouraged to apply.
Enska
Íslenska







