Rent-A-Party
Rent-A-Party
Rent-A-Party

Partýfulltrúi - Fullt starf - Helgarstarf

Við í Rent-A-Party leitum að kraftmiklum, skipulögðum og þjónustumiðuðum einstaklingi til að gerast hluti af mjög skemmtilegu teymi og taka þátt í spennandi verkefnum hjá ört vaxandi fyrirtæki.

Um er að ræða fullt starf og er vinnutíminn 9 - 16 á virkum dögum og 9 - 16 á laugardögum. Oft þarf þó að vinna meira í kringum helgar.

Einnig erum við að leitast eftir helgarstarfsfólki í vinnu 3 - 4 helgar í mánuði. Helgarstarfsfólki býðst einnig að vinna á föstudögum sé þess óskað.

Rent-A-Party sérhæfir sig í leigu á öllum þeim búnaði sem getur gert viðburði flottari, skemmtilegri og eftirminnilegri, ásamt smásölu á tilheyrandi vörum. Við leggjum mjög mikla áherslu á að veita fyrsta flokks þjónustu.

Starfið felur meðal annars í sér:

· Vera í samskiptum við viðskiptavini og afgreiða pantanir.

· Undirbúa búnað fyrir útleigu.

· Afhenda búnað og sinna uppsetningum og niðurtektum.

· Önnur tilfallandi verkefni sem geta komið upp.

Hæfniskröfur

· Vera 18 ára eða eldri

· Vera með bílpróf

· Geta unnið um helgar

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og eru laun samkvæmt kjarasamningi.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal senda hér í gegnum ráðningarkerfi Alfreðs. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og unnið er úr þeim jafnóðum.

Auglýsing birt21. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vesturvör 32B, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.ÚtkeyrslaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar