
Sýn
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Ert þú tækninörd með þjónustuhjarta?
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum þjónustufulltrúa til starfa í teymi tæknilegrar aðstoðar í þjónustuveri. Hlutverk þjónustufulltrúa er að aðstoða viðskiptavini sem hafa samband við að greina og leysa tæknileg vandamál, veita upplýsingar og ráðgjöf. Teymið sinnir meðal annars málum sem tengjast neti, sjónvarpi, fastlínum og annari fjarskiptaþjónustu. Starfið krefst góðs tæknilegs skilnings og getu til að vinna markvisst að lausn mála.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greina og leysa tæknileg vandamál
- Veita tæknilega aðstoð í gegnum síma, netspjall og tölvupóst.
- Fylgja eftir tæknimálum viðskiptavina og tryggja að þau séu leyst á skilvirkan og faglegan hátt.
- Vinna í verklistum tengdum flóknari tæknilegum vandamálum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góður tæknilegur skilningur
- Góð íslensku og ensku- kunnátta er nauðsynleg
- Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
- Áhugi á tækni og nýjungum
- Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
- Metnaður og frumkvæði
- Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun æskileg
Fríðindi í starfi
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Spennandi verkefni
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Möguleika á starfsþróun
- Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
- Árlegan heilsustyrk
- Símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Auglýsing birt19. október 2026
Umsóknarfrestur26. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Starfsmaður í tæknideild Smárabíós
Smárabíó

Sérfræðingur í upplýsingatækni – Samherji Fiskeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Tæknimaður í afgreiðslulausnum
Wise lausnir ehf.

Partýfulltrúi - Fullt starf - Helgarstarf
Rent-A-Party

Leitum að kerfisstjóra
TACTICA