HS Orka
HS Orka
HS Orka

Sérfræðingur í hleðslulausnum

HS Orka leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi í starf sérfræðings í hleðslulausnum. Í starfinu tekur viðkomandi virkan þátt í uppbyggingu hleðslunets HS Orku og gegnir lykilhlutverki í orkuskiptum á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í uppbyggingu og þróun hleðslunets HS Orku
  • Umsjón, eftirlit og viðhald núverandi hleðslunets
  • Þjónusta og ráðgjöf við núverandi og verðandi viðskiptavini
  • Greining tækifæra og þátttaka í áætlanagerð vegna frekari uppbyggingar
  • Samskipti við birgja, verktaka og samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í rafvirkjun er æskileg
  • Þekking eða reynsla af hleðslulausnum fyrir rafbíla er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð skipulagshæfni
  • Rík öryggisvitund
  • Gott vald á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar veitir Petra Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri, [email protected].

Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur23. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Orkubraut 3, 240 Grindavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar