
VÍS
VÍS er framúrskarandi vinnustaður með einstaka vinnustaðamenningu.
Við erum fyrirmyndarfyrirtæki, leggjum áherslu á jafnrétti og höfum útrýmt launamun kynjanna.
Við sköpum tækifæri fyrir starfsfólkið okkar til þess að vaxa og dafna – í lífi og starfi. Við bjóðum upp á nýsköpunarumhverfi og elskum hugrekki.
VÍS ætlar að breyta því hvernig tryggingar virka og þannig fækka slysum og tjónum. Við leggjum ríka áherslu á sjálfbærni því við vitum að það er framtíðin.

Sölu- og þjónusturáðgjafi á Akranesi
Viltu taka þátt í að byggja upp öflugt þjónustuteymi VÍS á Akranesi og hafa raunveruleg áhrif á upplifun viðskiptavina?
Við leitum að jákvæðum og framsýnum sölu- og þjónusturáðgjafa á þjónustuskrifstofu VÍS á Akranesi. Skrifstofan er í sama húsnæði og Íslandsbanki, að Dalbraut 1.
Viðkomandi þarf að búa yfir framúrskarandi þjónustulund og hæfni til að veita nýjum og núverandi viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði faglega ráðgjöf og þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina í gegnum síma, netspjall, tölvupóst og á þjónustuskrifstofu
- Frumkvæðissamskipti og sala í samræmi við þarfir hvers og eins
- Fagleg og persónuleg ráðgjöf varðandi tryggingar og tjón
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð samskiptahæfni
- Framúrskarandi þjónustulund, ástríða og metnaður fyrir því að veita úrvals þjónustu
- Reynsla af sölustörfum er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Metnaður í því að gera sífellt betur og vinna að umbótum
- Menntun sem nýtist í starfi
- Góð færni í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
- Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Heilsufarsskoðun, bólusetning og heilsueflandi fræðsla
- Virkt starfsmannafélag sem býður m.a. upp á golfklúbb og aðgang að orlofshúsum
Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalbraut 1, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sölu- og þjónusturáðgjafi í Reykjanesbæ
VÍS

Viðskiptastjóri Já
Sýn

Sölufulltrúi - Timburverslun BYKO
Byko

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Sölufulltrúi í varahlutaverslun
Klettur - sala og þjónusta ehf

Sölumaður notaðra bíla
Bílalíf bílasala

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Tæknilegur sölu- og þjónustufulltrúi ProLan
ProLan ehf.

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music