
Nói Síríus
Nói Síríus er rótgróið og öflugt fyrirtæki á matvælamarkaði. Hjá Nóa Síríus starfar samhentur hópur um 120 starfsmanna sem hefur það sameiginlega markmið að gleðja bragðlauka þjóðarinnar. Til þess er fjöldi sælgætistegunda framleiddur í glæsilegum húsakynnum fyrirtækisins að Hesthálsi 2-4.
Síríus súkkulaðið hefur verið ómissandi hluti af hátíðarstundum Íslendinga í tæp níutíu ár og Nói Síríus einsetur sér að vera í hópi leiðandi fyrirtækja á sínu sviði. Það gerir fyrirtækið með því að bjóða eftirsóknarverða gæðavöru og þjónustu sem standast ýtrustu kröfur viðskiptavina á alþjóðlegan mælikvarða. Vöruþróun skipar að auki stóran sess í starfsemi Nóa Síríusar og nýjungar fyrirtækisins líta reglulega dagsins ljós í hillum verslana, Íslendingum til mikillar ánægju.
Nói Síríus telur að bestum árangri sé náð í starfi þegar þekking og færni starfsfólks fá að njóta sín og einstaklingurinn finnur til ábyrgðar. Í slíku andrúmslofti leggjast allir á eitt og skapa traustan grunn að öflugum rekstri.
______
Nói Síríus is a well-established and powerful company in the Icelandic food industry. Nói Síríus has a tight-knit workforce of about 120 employees who share the goal of tickling the taste buds of Icelanders. Many different kinds of sweets are produced in the company’s impressive facilities at Hestháls 2-4.
Síríus chocolate has been an indispensable part of Icelandic festivities for close to ninety years, and Nói Síríus is committed to being a leader in its field. The company aims to achieve this goal this by providing quality products and services that meet customers' highest standards according to international criteria. Product development is also a major part of Nói Síríus’ activities, and new and innovative products are introduced regularly, to the great delight of Icelandic consumers.
At Nói Síríus, we believe that the best results will be achieved when our staff can freely apply their knowledge and skills, and when each individual has a sense of responsibility. In our work environment we have a common cause: to lay a solid foundation and build a robust, dynamic operation.
______
Nói Síríus to firma z silnie ugruntowaną pozycją w islandzkiej branży spożywczej. Zgrany zespół 120 pracowników łączy wspólny cel, jakim jest dostarczanie Islandczykom niezapomnianych wrażeń smakowych. Różne rodzaje słodyczy są produkowane w imponujących zakładach firmy przy ulicy Hestháls 2-4.
Czekolada Síríus już od prawie 90 lat towarzyszy Islandczykom w celebrowaniu ważnych chwil, a sama firma Nói Síríus przez cały czas stara się pozostać liderem w branży. Aby osiągnąć ten cel, firma zapewnia klientom wysokiej jakości produkty i usługi, które spełniają ich najwyższe oczekiwania i są zgodne z międzynarodowymi standardami. Do głównych obszarów działalności Nói Síríus należy również poszerzanie gamy produktów pozwalające regularnie wprowadzać na rynek nowe i innowacyjne wyroby, które zachwycają islandzkich konsumentów.
W Nói Síríus wierzymy, że najlepsze rezultaty przynosi zapewnienie personelowi swobody w wykorzystaniu posiadanej wiedzy i umiejętności, a także poczucie obowiązku u każdego pracownika. W naszym środowisku pracy łączy nas wspólny cel: zbudowanie solidnych podwalin pod intensywne i dynamiczne działanie.

Sölumaður í vettvangssölu
Vilt þú starfa með sætustu vörumerkjum landsins?
Nói Síríus leitar að metnaðarfullum, áreiðanlegum og þjónustulunduðum einstaklingi til að starfa í vettvangssölu fyrirtækisins. Sem starfsmaður í vettvangssölu munt þú gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja að vörur okkar séu til staðar í verslunum. Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt og er með góða samskiptahæfni og skipulagshæfileika.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Áfylling og umsjón með vörum í verslunum
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Ábyrgð á framsetningu í verslunum
- Eftirlit með verðmerkingum
- Þátttaka í sölustarfi og söluherferðum
- Önnur tilfallandi verkefni á sviði vettvangssölu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
- Reynsla úr svipuðu starfi er kostur
- Stundvísi og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði og fagmennska
- Bílpróf er skilyrði
- Hreint sakavottorð er skilyrði
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur morgun- og hádegismatur
- Íþróttastyrkur
- Afsláttur af vörum fyrirtækisins
- Öflugt teymi og gott starfsumhverfi
- Heilsufarsskoðun og velferðarþjónusta frá utanaðkomandi fagaðila
- Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins
- Virkt starfsmannafélag
- Golfklúbbur
- Píluklúbbur
Auglýsing birt1. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaValkvætt
Staðsetning
Hestháls 2-4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaStundvísiVöruframsetningÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf

Sölufulltrúi 66° Norður Miðhrauni
66°North

Fullt Starf í Versluninni Sportís
Sportís ehf

Söluráðgjafi í grófvöru til fagaðila
Byko

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

Sölumaður nýrra bíla Leapmotor, Jeep, RAM, Fiat atvinnubílar
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson

Innrammari / sölumaður
Innrammarinn ehf.

Viltu spennandi hlutastarf í úthringingum?
Símstöðin ehf

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Móttöku og þjónustufulltrúi við Móttökustöðina á Strönd
Sorpstöð Rangárvallasýslu