Símstöðin ehf
Símstöðin ehf
Símstöðin ehf

Viltu spennandi hlutastarf í úthringingum?

Símstöðin leitar að sölufulltrúum í hlutastarf

Við hjá Símstöðinni hjálpum fjölmörgum góðgerðarfélögum við fjáröflun með úthringingum allt árið um kring. Vegna aukinna verkefna leitum við nú að jákvæðu og drífandi fólki til að styrkja teymið okkar.

Starfið felst í úthringingum til einstaklinga fyrir fjölbreytt góðgerðarmálefni.

Starfshlutfall er 20–60% og vaktir eru að jafnaði 4 klukkustundir. Gert er ráð fyrir að starfsmenn taki að lágmarki tvær vaktir á viku.

Sérstaklega vantar okkur fólk sem getur unnið á seinni part dags, en einnig eru vaktir í boði fyrr yfir daginn.

Boðið er upp á fast tímakaup auk bónusa fyrir góðan árangur.

Við leitum að fólki sem:

  • Er jákvætt og á auðvelt með samskipti

  • Getur unnið sjálfstætt og skipulega

  • Hefur mjög góða færni í íslensku (Icelandic fluency required)

  • Er 20 ára eða eldra

Engin fyrri sölureynsla er nauðsynleg. Við veitum öllum nýjum starfsmönnum góða þjálfun og stuðning í upphafi.

Starfið er unnið á starfsstöð Símstöðvarinnar og er ekki um fjarvinnu að ræða.

Umsækjendur þurfa að geta framvísað hreinu sakavottorði.

Opnunartími Símstöðvarinnar:

Mánudaga–fimmtudaga: 10:00–19:00
Föstudaga: 10:00–15:00

Sendu inn umsókn eða hafðu samband ef þú hefur spurningar. Við hlökkum til að heyra frá þér.

Auglýsing birt30. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Malarhöfði 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sölumennska
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar