

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Við leitum að drífandi og skipulögðum aðila til að selja varahluti og nýjan búnað.
Eftir atvikum er farið til viðskiptavina og bilanagreint.
Starfið er lifandi, skemmtilegt og er góður starfsandi.
Í boði eru námskeið hjá birgjum til að efla starfsmanninn eftir þörfum.
Aflhlutir eru umboðaðili fyrir nokkur af stærstu vörumerkjum sem þekkjast í sjávarútvegi og iðnaði.
Helstu merkin eru:
Cummins - Bátavélar, rafstöðvar og BESS rafhlöður.
Corrosion - Tæringavörn í skip.
John Deere - Bátavélar og rafstöðvar.
GreenOil - Síu- og hreinsikerfi fyrir olíu og eldsneyti.
Deutz - Vélar í iðnaði.
TwinDisc - Gírar í skip.
Kral - Dælur og mælibúnaður.
O.s.fr
Sala nýs búnaðar, varahluta og tæknilausna.
Bilanagreining eftir þörfum hjá viðskiptavini.
Hér er kjörið tækifæri fyrir vélstjóra, vélvirkja, tæknifræðinga eða iðnfræðinga til að láta ljós sitt skína.
Einnig metnaðarfulla einstaklinga sem eru til í að læra nýja hluti.
Niðurgreitt mötuneyti.
Líkamsræktarstyrkur.
Fræðslustyrkur.
Íslenska
Enska










