Samherji fiskeldi ehf.
Samherji fiskeldi ehf.

Sérfræðingur í stýri- og sjálfvirknikerfum (SCADA) – Samherji Fiskeldi

Samherji Fiskeldi leitar að reynslumiklum sérfræðingi í stýri- og sjálfvirknikerfum til að ganga til liðs við upplýsingatæknisvið fyrirtækisins og sinna þjónustu og þróun SCADA kerfa. Samherji Fiskeldi rekur landeldisstöðvar og fiskvinnslur víða um land og er að byggja nýjan Eldisgarð á Reykjanesi. Stýrikerfin eru hjarta starfseminnar. Þau vakta og stýra vatnsgæðum, súrefni, dælum, fóðrun og vinnslulínum, og rekstur þeirra hefur bein áhrif á velferð fisksins og afköst framleiðslunnar.

Framundan er mikil uppbygging og framþróun á þessu sviði. Viðkomandi mun taka virkan þátt í að byggja upp framtíðarumhverfi stýrikerfa fyrirtækisins, bæði í núverandi stöðvum og við uppbyggingu Eldisgarðs frá grunni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rekstur, viðhald og þróun SCADA kerfa í landeldisstöðvum og fiskvinnslum fyrirtækisins, sem byggja á AVEVA System Platform
  • Innleiðing nýrra kerfa og stækkanir á núverandi uppsetningu
  • Þátttaka í hönnun og uppbyggingu stýrikerfa Eldisgarðs á Reykjanesi, sem byggja á Ignition SCADA
  • Samstarf við og eftirfylgni með verkfræðistofum og þjónustuaðilum: rýni á hönnun, prófanir og úttektir
  • Þátttaka í þróun samræmdra staðla og verklags fyrir stýrikerfi á öllum starfsstöðvum
  • Samþætting SCADA kerfa við önnur upplýsingakerfi, svo sem gagnasöfnun, sögugrunna og skýrslugerð
  • Öryggi og rekstraröryggi stýrikerfa (OT öryggi), í samvinnu við upplýsingatæknisvið
  • Bilanagreining og úrlausn vandamála í samvinnu við starfsfólk á stöðvunum
  • Skjölun á kerfum, breytingum og verkferlum
Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í verkfræði, tæknifræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Að minnsta kosti 5 ára reynsla af hönnun, forritun eða rekstri SCADA kerfa
  • Reynsla af AVEVA System Platform og/eða Ignition frá Inductive Automation
  • Þekking á iðnstýringum (PLC) og samskiptastöðlum, svo sem OPC UA, Modbus og Ethernet/IP
  • Þekking á netkerfum í iðnaðarumhverfi
  • Geta til að vinna sjálfstætt, forgangsraða verkefnum og taka ábyrgð
  • Góð samskiptahæfni og reynsla af samstarfi við ráðgjafa, verktaka og notendur

Kostur

  • Reynsla af stýrikerfum í fiskeldi, matvælaiðnaði, veitum eða sambærilegum vinnsluiðnaði
  • Þekking á OT öryggi og stöðlum 
  • Þekking á SQL gagnagrunnum og sögugrunnum (historian)
  • Reynsla af verkefnastjórnun
Fríðindi í starfi
  • Lykilhlutverk í fyrirtæki í örum vexti
  • Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu stýrikerfa nýs Eldisgarðs frá grunni
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni á mörgum starfsstöðvum
  • Tækifæri til faglegrar þróunar
  • Gott starfsumhverfi og samheldinn hóp
Auglýsing birt28. september 2026
Umsóknarfrestur19. október 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar