SnerpaPower
SnerpaPower

SnerpaPower - Sérfræðingur í skýjalausnum

Hugbúnaðarfyrirtækið SnerpaPower óskar eftir að ráða drífandi og metnaðarfullan einstakling í starf sérfræðings í skýjalausnum. Um er að ræða fjölbreytt tæknistarf sem nær yfir innviðastjórnun og hugbúnaðarþróun og mun viðkomandi bera ábyrgð á skýjainnviðum og dreifingarkerfum sem mynda grunninn að lausnum SnerpaPower auk þess að koma að þróun bakenda.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hanna, viðhalda og þróa AWS-skýjainnviði fyrirtækisins.
  • Þróa og viðhalda innviðalausnum sem kóða (Infrastructure as Code) með Terraform.
  • Bæta CI/CD-ferla og sjálfvirknivæða hugbúnaðardreifingu með GitLab.
  • Vakta, greina og leysa rekstrarvandamál ásamt því að hámarka afköst, öryggi og áreiðanleika kerfa.
  • Styðja við útgáfur hugbúnaðar og rekstur framleiðsluumhverfis.
  • Taka þátt í bakendaþróun með Python og Django.
  • Hanna og þróa skalanleg API og bakendaþjónustur.
  • Taka virkan þátt í tæknilegri stefnumótun, arkitektúrsvinnu og tæknilegri ákvarðanatöku.
  • Vinna náið með öllu þróunarteyminu að stöðugum umbótum á kerfum, verkfærum og þróunarferlum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegt tækninám.
  • Reynsla af þróun og rekstri skýjalausna.
  • Reynsla af að minnsta kosti einum stærri skýjavettvangi, helst AWS.
  • Reynsla af þróun bakendakerfa.
  • Reynsla af Infrastructure as Code hugmyndafræði og verkfærum.
  • Reynsla af Git og nútímalegum CI/CD vinnubrögðum.
  • Góður skilningur á hugbúnaðar- og skýjakerfisarkitektúr, netkerfum og grunnatriðum upplýsingaöryggis.
  • Sterk greiningarhæfni og góð samskiptahæfni.
  • Frumkvæði, ábyrgðarkennd og áhugi á símenntun og umbótum.
  • Áhugi á nýrri tækni, þar á meðal gervigreindarstuddar þróunaraðferðir og nútímalegar verklagsaðferðir í hugbúnaðarþróun.


Um fyrirtækið:

SnerpaPower er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar og rekur SaaS-lausn sem nýtir gervigreind fyrir orkusækinn iðnað. Fyrirtækið hefur þróað tækni sína í samstarfi við iðnfyrirtæki sem eiga við flóknar áskoranir í raforkunotkun og áætlanagerð og lausnin hefur þegar sannað gildi sitt hjá viðskiptavinum.

Gildi SnerpaPower eru: Hugsa stórt – Framúrskarandi gæði – Samvinna – Sjálfbærni

Umsóknarfrestur er til og með 29. september 2026 en unnið verður úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt15. september 2026
Umsóknarfrestur29. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ármúli 13, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AWSPathCreated with Sketch.BakendaforritunPathCreated with Sketch.DjangoPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.Tölvunarfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar