
Advania
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar við að einfalda störf viðskiptavina okkar með snjallri nýtingu á upplýsingatækni. Þó við séum sérfræðingar í tækni viljum við veita framúrskarandi þjónustu. Við hlúum að fólkinu okkar og hjálpumst að við að skapa lifandi vinnustað.
Advania á Íslandi er hluti af Advania-samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með yfir 50 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa yfir 5000 sérfræðingar í upplýsingatækni.

Microsoft sérfræðingur
Advania leitar að reynslumiklum einstaklingi í sérfræðiteymi notenda- og útstöðvaþjónustu. Kjarni starfsins er uppsetning, rekstur, stýring og sjálfvirknivæðing Microsoft 365, Entra ID og Intune umhverfum.
Sérfræðiteymið er hópurinn á bakvið framlínuna. Teymið vinnur þétt með framlínunni ásamt öðrum sérfræðiteymum Advania.
Teymið ber tæknilega ábyrgð á þjónustukerfum og ferlum sem deildin rekur og betrumbætir. Teymið sinnir einnig innleiðingum og flóknari verkefnum. Mikil áhersla er lögð á stöðugt, öruggt og otendavænt rekstrarumhverfi en einnig að einfalda, sjálfvirknivæða og bæta þá þjónustu, kerfi og ferla sem notuð eru við þjónustuveitinguna.
Helstu verkefni
- Umbætur, stöðlun og sjálfvirknivæðing á þeirri þjónustu, kerfum og ferlum sem notuð eru við notenda- og útstöðvaþjónustu
- Innleiðing viðskiptavina í notenda- og útstöðvarþjónustu
- Rekstur, stýring uppfærslna og öryggi útstöðva
- Umsjón með útstöðvavernd og aðgangsvernd
- Hugbúnaðardreifing og uppfærsla forrita
Hæfniskröfur
- 3+ ára reynsla af kerfisstjórn, útstöðvaþjónustu eða rekstri Microsoft-umhverfa
- Sterk þekking á Windows Client, Microsoft 365, Entra ID og Intune – reynsla af uppsetningu og stýringu þessara kerfa, ekki einungis notkun
- Reynsla af rekstri útstöðva og innleiðingum tækja
- Góð þekking og reynsla á PowerShell æskileg
- Nám í kerfisstjórnun, tölvunarfræði eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Vottun á sviði Microsoft-lausna er kostur, t.d. Endpoint Administrator, Identity and Access Administrator eða Modern Desktop
- Framúrskarandi þjónustulund
- Frumkvæði og áhugi á að einfalda, staðla og sjálfvirknivæða þjónustu, kerfi og ferla
- Áhugi á upplýsingatækni, notendaþjónustu og öryggismálum
- Góð enskukunnátta
Auglýsing birt14. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leitum að kerfisstjóra
TACTICA

Sérfræðingur í upplýsingatækni
Lagerinn Iceland ehf.

Notendaþjónusta í UT
Hagvangur

Ert þú lausnamiðaður sérfræðingur í upplýsingatækni?
Sómi

Starf í þjónustuveri Stafrænnar heilsu
Heilbrigðisráðuneytið

Sérfræðingur í innri endurskoðun
Landsbankinn

Clinitech leitar að tæknimanni
Clinitech

Sérfræðingur í upplýsingaöryggi
Landsbankinn

Sérfræðingur í Vélbúnaðarþjónustu
Landsbankinn

Backend Software Engineer
Asana

Senior Backend Software Engineer
Asana

Sérfræðingur í gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingu
Úrvinnslusjóður