Clinitech
Clinitech

Clinitech leitar að tæknimanni

Clinitech leitar að tæknimanni

Ertu nákvæmur, þjónustulundaður og hefur gaman af því að láta hlutina virka?

Við leitum að tæknimanni sem nýtur þess að vinna á vettvangi – setja upp tölvur, tengja búnað og leysa tæknileg vandamál í nánum samskiptum við viðskiptavini.

Clinitech þjónustar heilbrigðisstofnanir og fyrirtæki, með sérstaka áherslu á tannlæknastofur. Stór hluti starfsins felst í því að heimsækja stofur og vinnustaði, ljúka uppsetningum og frágangi og aðstoða viðskiptavini þegar tæknileg vandamál koma upp.

Helstu verkefni

  • Uppsetning, tenging og frágangur tölvu- og jaðarbúnaðar hjá viðskiptavinum
  • Uppsetning prentara, skanna og sérhæfðs búnaðar
  • Frágangur og tenging netbúnaðar og þráðlausra lausna
  • Bilanagreining og úrlausn tæknilegra mála hjá viðskiptavinum og í fjarþjónustu
  • Innleiðing nýrra lausna og uppsetning nýrra vinnustöðva
  • Skráning verkefna og eftirfylgni með þeim

Við leitum að einstaklingi sem

  • Hefur reynslu af uppsetningu og tengingu tölvubúnaðar og getur unnið sjálfstætt
  • Hefur góða þekkingu á Windows-stýrikerfum
  • Er nákvæmur og vandvirkur í vinnubrögðum
  • Hefur góða þjónustulund og á auðvelt með samskipti
  • Vinnur sjálfstætt og skipulega
  • Hefur áhuga á upplýsingatækni og vilja til að læra og þróast
  • Hefur gott vald á íslensku og ensku
  • Hefur gilt ökuskírteini – akstur milli staða er hluti af starfinu

Við gerum ráð fyrir að umsækjendur hafi grunnþekkingu og reynslu af uppsetningu tölvubúnaðar. Þetta er því ekki byrjendastarf, en gott tækifæri fyrir þann sem vill byggja ofan á fyrri reynslu og öðlast meiri þekkingu á upplýsingatækni, netkerfum og sérhæfðum lausnum.

Kostur, en ekki skilyrði

  • Þekking á Microsoft 365
  • Þekking á netkerfum og UniFi-lausnum
  • Þekking á 3CX-símkerfum
  • Reynsla af upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni og tækifæri til að vinna sjálfstætt
  • Gott og samheldið teymi þar sem fólk styður hvert annað
  • Tækifæri til að vaxa í starfi og bæta við sig þekkingu
  • Tækifæri til að læra og þróast innan Garnes Gruppen

Um Clinitech

Clinitech er sérhæft upplýsingatæknifyrirtæki sem þjónustar heilbrigðisstofnanir og fyrirtæki, með sérstaka áherslu á tannlæknastofur. Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar og þekkjum þeirra kerfi, búnað og daglega starfsemi. Starfsfólk fær tækifæri til að vaxa í starfi, sérhæfa sig og með tímanum takast á við flóknari verkefni.

Clinitech er hluti af Garnes Gruppen, norskri tæknisamstæðu með starfsemi á Íslandi og í Noregi. Það skapar tækifæri til að öðlast breiðari þekkingu, takast á við fjölbreyttari verkefni og þróast innan vaxandi fyrirtækis.

Auglýsing birt9. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Silfursmári 12
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar