
Avians
Avians veitir flugleiðsöguþjónustu á íslensku flugstjórnarsvæðinu. Við tengjum heimsálfur á Norður-Atlantshafinu og brúum bil fólks og menningarheima á hagkvæman, framsýnan og öruggan hátt. Við leggjum áherslu á framúrskarandi flugleiðsögu á alþjóðlegan mælikvarða. Við fylgjumst jafnframt vel með tækifærum og tækniþróun og notum nýjustu tækni til að auka og bæta þjónustu.
Við viljum að starfsfólk okkar sé ánægt í starfi og að við séum eftirsóttur vinnustaður. Við leggjum áherslu á að starfsfólk okkar fái viðeigandi þjálfun til að sinna starfi sínu sem og tækifæri til að þróast í starfi.

Kerfisstjóri/netstjóri í flugleiðsöguþjónustu
Avians leitar að öflugum kerfis- netstjóra sem vill taka þátt í að byggja upp, reka og viðhalda tæknibúnaði sem tryggir örugga þjónustu í íslenska flugstjórnarsvæðinu.
Gerð er krafa um góða netþekkingu og færni í rekstri netþjóna í Linux umhverfi. Um er að ræða fullt starf á dagtíma með starfstöð á Nauthólsvegi í Reykjavik.
Við leitum að lausnamiðuðum og vönum manni til að styrkja öflugt og samhent teymi.
Um er að ræða krefjandi starf í vaxandi umhverfi þar er tækifæri til að kynnast og vinna við fjölbreytt kerfi sem hafa bein áhrif á öryggi og þjónustu íslenska flugstjórnarsvæðisins.
Frekari upplýsingar veitir Óskar Egilsson í gegnum netfangið [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rekstur, viðhald, eftirlit og uppsetning á:
- Netkerfum, IP/MPLS kerfi og eldveggjum.
- Upplýsingatæknikerfa
- Sérhæfðum kerfum tengd flugleiðsögu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Net- og/eða kerfisstjóramenntun æskileg, eða sambærileg menntun
- Þekking á Cisco og Linux umhverfi nauðsynleg
- Þekking á Fortinet og Nokia netbúnaði er æskilegur
- Þekking á Container og Kubernetes lausnum er kostur
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi
- Lausnamiðað hugarfar
- Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptafærni og jákvætt viðmót
- Bílpróf er skilyrði
- Góð færni í íslensku og ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Nauthólsvegur 66, 102 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiLinuxSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (5)




