OK
OK
OK

OK leitar að starfsfólki á NOC vaktborð - Hlutastarf/Helgarvaktir

OK leitar að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi til að sinna starfi NOC-vaktmanns á miðlægri vöktunarmiðstöð félagsins.

Um er að ræða hlutastarf með mætingu á starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu. Umsækjandi þarf að hafa einhverja reynslu af sambærilegum störfum.

Vinnutími er að jafnaði frá kl 16:00-22:00 aðra hverja helgi ásamt tveimur virkum kvöldum í mánuði frá 16:00-22:00, auk þess sem möguleiki er á tilfallandi vöktum bæði utan og á dagvinnutíma vegna afleysinga innan teymisins.

Starfið hentar því sérstaklega einstaklingi sem hefur sveigjanleika til að taka að sér vaktir á dagvinnutíma þegar þörf krefur.

Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.

Hvað er NOC ?

NOC (Network Operations Center) er okkar 24x7 vöktunarþjónusta.

Vöktunarþjónusta felur í sér vöktun á tölvukerfum allan sólarhringinn, alla daga ársins og býr að öflugum hópi sérfræðinga, vöktunarkerfum og ferlum sem tryggja þann uppitíma sem krafist er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Helgar (16:00-22:00) og tvö virk kvöld (16:00-22:00)- ásamt möguleika á tilfallandi vöktum, bæði utan og á dagvinnutíma

  • Umsýsla kerfa, útstöðva og annarra jaðartækja

  • Úrvinnsla verkbeiðna

  • Þjónusta við notendur

  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af beiðnakerfum, flokkun beiðna og notendaþjónustu
  • Nám í kerfisstjórnun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er nauðsyn
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
  • Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Mjög góð færni í íslensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
  • Góð færni í ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
Fríðindi í starfi

🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæði
🚲 Líkamsræktarstyrkur til að styðja við heilsusamlegum líffsstíl
🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
🥗 Matur á staðnum ásamt grænkerakostum
💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi með möguleika á starfsþróun
🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags
🏆 Starfaðu hjá margverðlaunuðu fyrirmyndarfyrirtæki

Auglýsing birt25. ágúst 2026
Umsóknarfrestur6. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar