
Helix Health
Helix Health hefur þróað tæknilausnir fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi í 30 ár. Hér vinnur metnaðarfullt teymi með fjölbreyttan bakgrunn sem hefur það að leiðarljósi að vilja hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Lausnir Helix ganga meðal annars út á að minnka þann tíma sem fer í skráningu hjá heilbrigðisstarfsfólki, auka öryggi skjólstæðinga og hagræða í rekstri heilbrigðisstofnana.

Þjónustusérfæðingur
Við hjá Helix leitum að þjónustusérfræðingi til að sinna tækniþjónustu á mikilvægum innviðum heilbrigðiskerfisins á Íslandi svo sem sjúkraskrárskerfinu Sögu og heilbrigðistækni smáforritum (öpp).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veitt notendum tækniaðstoð í gegnum síma, beiðnakerfi, netspjall og fjarstýringarhugbúnað
- Tekið á móti, greint og leyst vandamál sem tengjast hugbúnaði, vélbúnaði, netkerfum og rekstrarkerfum
- Sinnt uppsetningum, kerfisbreytingum og ráðgjöf á heilbrigðiskerfum Helix og viðskiptavina
- Sjá um uppsetningu gagnagrunna; gagnaflutninga og gagnavinnslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- SQL þekking – Oracle og SQL server
- Góð þekking á rekstri IIS vefþjóna, Windows og Linux netþjóna
- Metnaður, jákvæðni og þjónustulipurð
- Sjálfstæði, skipulögð vinnubrögð og greiningarfærni
- Staðfest reynsla af því að vinna með gervigreind
- Tæknilegar vottanir og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af því að starfa í ISO27001 umhverfi er kostur
Fríðindi í starfi
- Tækifæri til að starfa í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi.
- Hvetjandi verkefni þar sem virðing og samvinna eru lykilatriði
- Sveigjanleika og tækifæri til persónulegs og faglegs vaxtar
- Samgöngustyrkur og íþróttastyrkur
- Líkamsræktaraðstaða í húsinu
- Frábært mötuneyti
- Metnaðarfullur stuðningur við starfsfólk í fæðingarorlofi
Auglýsing birt27. ágúst 2026
Umsóknarfrestur7. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 30A
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Business Central ráðgjafi
Wise lausnir ehf.

OK leitar að starfsfólki á NOC vaktborð - Hlutastarf/Helgarvaktir
OK

Tæknistarf á ferðinni - Austurland
Securitas

Sérfræðingur í þróun notendalausna
Advania

Innviðir framtíðarinnar - Sérfræðingar í gagnaverum á Blönduósi og í Keflavík
Ofar ehf

Front-end Software Engineer
Bókun / Tripadvisor

Ert þú týpan sem elskar að leysa tæknileg vandamál?
Raförninn

Ert þú Tölvusnillingur? 💻
Matarkompani

Tæknimaður á verkstæði / Raftæki
Raftækjaverkstæðið

Engineering Manager, Development Infrastructure
Asana

Senior Backend Software Engineer
Asana

Junior Software Engineer
Asana