Securitas
Securitas
Securitas

Tæknistarf á ferðinni - Austurland

Okkar frábæra tækniteymi á Austurlandi vantar liðsauka!

Starfið felur í sér fjölbreytta tækni- og eftirlitsþjónustu á öryggis- og brunaviðvörunarkerfum, ásamt uppsetningum og forritun á aðgangstýrikerfum, myndavélum og eftirlitsbúnaði. Lögð er rík áhersla á vönduð vinnubrögð, jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Ef þú...

  • hefur brennandi áhuga á tækninýjungum og góða almenna tækniþekkingu
  • sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að takast á við krefjandi verkefni
  • býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku
  • ert með sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun er það kostur

... þá gætum við verið að leita af þér

Í boði er fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 8:00-16:00 virka daga. Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.

Umsóknarfrestur er til og með 1. september nk. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Gunnar Guðmundsson, verkefnastjóri, í síma 580-7000.

Auglýsing birt18. ágúst 2026
Umsóknarfrestur1. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 12A, 735 Eskifjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.RafeindavirkjunPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Rafvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar