Securitas
Securitas
Securitas

Öryggisvörður í farandgæslu á Akureyri

Við hjá Securitas leitum að liðsauka í okkar frábæra gæsluteymi til að taka þátt í að viðhalda góðu viðbragði og framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina okkar. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Starfið felur í sér almenna þjónustu við viðskiptavini Securitas, viðbragð við útköllum vegna boða frá öryggiskerfum ásamt því að tryggja almennt öryggi og eftirlit með hvers konar öryggisþáttum viðskiptavina okkar.

Ef þú...

  • Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt.
  • Býrð yfir metnaði til að takast á við krefjandi verkefni.

... þá gætum við verið að leita að þér!

Í boði er fullt starf þar sem unnið er á vaktakerfinu 5-5-4, ýmist á dag- eða næturvöktum. Starfið hentar öllum kynjum sem náð hafa 20 ára aldri með góða íslenskukunnáttu, hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.

Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst nk. Við hvetjum umsækjendur til að skila inn umsóknum sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eygló Ómarsdóttir verkefnastjóri, netfang: [email protected]

Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur26. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar