

Sérfræðingur í þróun notendalausna
Advania leitar að lausnamiðuðum sérfræðingi í þróunarteymi notenda- og útstöðvaþjónustu.
Þróunarteymið er sérfræðihópurinn á bakvið framlínuna. Teymið vinnur þétt með framlínunni ásamt öðrum þróunarteymum Advania. Teymið ber tæknilega ábyrgð á þjónustukerfum og ferlum sem deildin rekur og þróar ásamt því að sinna innleiðingum, flóknari verkefnum og styðja við framlínuna. Mikil áhersla er lögð á að nýta Microsoft 365, Intune og Defender til þess að halda úti stöðugu, öruggu og notendavænu rekstrarumhverfi.
Fyrir liggja spennandi verkefni í innleiðingum, hönnun og uppsetningu útstöðva umhverfa og stöðugri framþróun á þeirri þjónustu, kerfum og ferlum sem notuð eru við þjónustuveitinguna.
Helstu verkefni
- Framþróun á þeirri þjónustu, kerfum og ferlum sem notuð eru við notenda- og útstöðvarþjónustu, m.a. með sjálfvirknivæðingu og stöðlun
- Innleiðing viðskiptavina í notenda- og útstöðvarþjónustu
- Rekstur, stýring uppfærslna og öryggi útstöðva
- Umsjón með útstöðvavernd og aðgangsvernd
- Hugbúnaðardreifing og uppfærsla forrita
- Fjarþjónusta og aðstoð við notendur, m.a. með skjádeilingu, í gegnum spjall, þjónustubeiðnir og síma
Hæfniskröfur
- Framsækni, áhugi og frumkvæði á að bæta og þróa áfram þjónustu, kerfi og ferla
- Áhugi á upplýsingatækni, notendaþjónustu og öryggismálum
- Góð þekking á Windows, Microsoft 365, Intune og öðrum algengum notendahugbúnaði
- Reynsla af rekstri útstöðva og innleiðingum tækja
- Þekking og reynsla á Powershell
- 3+ ára reynsla af sambærilegu starfi
- Nám í tölvunarfræði, kerfisstjórnun eða önnur menntun sem nýtist í stafi
- Vottuð þekking á sviði Microsoft lausna er kostur
- Góð enskukunnátta
- Framúrskarandi þjónustulund
Við hvetjum öll kyn til að sækja um hjá okkur.
Hjá Advania munt þú
- Starfa með skemmtilegum hóp af fólki með áralanga reynslu í IT
- Vinna að lausn vandamála
- Hafa tækifæri til að vaxa og auka þekkingu þína
- Starfa á vinnustað sem leggur mikið upp úr sveigjanleika hvað varðar fjarvinnu / staðvinnu.
- Vera í samskiptum við fjölbreyttan hóp viðskiptavina sem gera daginn litríkan og skemmtilegan
- Hafa aðgang að fjölbreyttu klúbba og félagsstarfi innan fyrirtækisins
- Hafa aðgang að kaffihúsi Advania, glæsilegu mötuneyti og líkamsræktarstöð
- Starfa hjá fyrirtæki sem er umhugað um kolefnisspor sitt, jafnrétti kynja og sjálfbærni
Enska










