Sýn
Sýn
Sýn

Liðsstjóri Samþættingateymis

Ertu reynslumikill tæknilegur leiðtogi með ástríðu fyrir hönnun og smíði stafrænna lausna? Hugbúnaðarþróunardeild Sýnar leitar að öflugum liðsstjóra til að slást í hópinn og leiða samþættingateymi í spennandi verkefnum. Í þessu starfi færðu tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á tæknilega stefnu og útfærslu lausna, leiða öflugt teymi og taka virkan þátt í að móta framtíð stafrænnar þjónustu Sýnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita tæknilega leiðsögn og stuðning innan þróunarteymisins
  • Þátttaka í mótun á tæknilegum arkitektúr og kerfislandslangi í samræmi við þarfir
  • Þátttaka í framþróun, samþættingu og viðhaldi stafrænna lausna
  • Greina og fjarlægja hindranir sem hafa áhrif á framgang verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • BSc gráða í tölvunarfræði eða verkfræði kostur
  • Reynsla á bakenda forritun og þekking á gagnagrunnum
  • Reynsla á samþættingu milli kerfa
  • Reynsla í að beita DevOps hugmyndafræði
  • Reynsla á Temporal eða sambærilegum ferlakerfum mikill kostur
  • Jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
  • Spennandi tæknilega vegferð
  • Metnaðarfullt og hæft teymi með skýra tæknilega stefnu
  • Líflegur og skemmtilegur vinnustaður
  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift
  • Streymisveitu Sýnar og Viaplay
  • Árlegan heilsustyrk
  • Símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Auglýsing birt14. ágúst 2026
Umsóknarfrestur7. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar