Sýn
Sýn
Sýn

Sérfræðingur í sjálfvirkni og innviðum - DevOps teymi

Langar þig að byggja innviði sem önnur teymi treysta á, sjálfvirknivæða allt sem hægt er og vera í fremstu röð í nýtingu gervigreindar í verkferlum? DevOps teymi Sýnar leitar að áhugasömum sérfræðingi sem vill taka þátt í að móta framtíð innviðaþróunar hjá okkur.

DevOps teymið er sjálfstæð eining sem byggir og rekur sameiginlega innviði, sjálfvirkniverkfæri og CI/CD flæði fyrir þróunarteymi Sýnar. Í starfi okkar sjáum við um allt frá Terraform-stýrðum innviðum á AWS og staðbundnum sýndarvélum yfir í nýsköpun á sviði gervigreindardrifinna verkfærna og spec-driven þróunarferla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun og viðhald á innviðum með Terraform (AWS og on-prem)
  • Þróun og umsjón CI/CD flæða í GitHub Actions – samnýtanleg workflow og starfsvenjur
  • Sjálfvirkni á og eftirlit með rekstrarverkferlum með skriftumálum (Bash, Python, Temporal.io)
  • Greining og lausn vandamála í flóknum kerfum, þar á meðal eldri kerfum með takmarkaða skjölun
  • Þátttaka í uppbyggingu á gervigreindardrifnum verkfærum og agent-lausnum
  • Samstarf við þróunarteymi – veita leiðsögn, byggja sjálfsafgreiðslulausnir og tryggja góða þróunarupplifun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • 3+ ára reynsla af innviðastjórnun, sjálfvirkni eða DevOps
  • Góð þekking á Terraform og Infrastructure as Code hugmyndafræði
  • Reynsla af CI/CD hönnun, helst GitHub Actions
  • Sterk hæfni í skriftun og sjálfvirkni (Bash og/eða Python)
  • Reynsla af bæði skýjalausnum (AWS) og staðbundnum sýndarvélum
  • Hæfni í vandamálagreiningu – geta kafað í óþekkt kerfi og fundið kjarnann

Kostur ef þú hefur

  • Verkferlamiðað hugarfar
  • Reynslu af gervigreindardrifnum verkfærum eða
  • Þekkingu á spec-driven þróunaraðferðum
  • Bakgrunn í öfugverkfræði (reverse engineering) eða kerfagreiningum
  • Reynslu af að byggja innri verkfæri og sjálfsafgreiðslulausnir fyrir þróunarteymi

Hvers konar manneskja leitum við að?

Þú ert forvitin, með drifkraft og sjálfstæð í vinnubrögðum en þrífst einnig vel í samstarfi við aðra. Þú hefur áhuga á tækni – ekki bara sem starfi heldur sem áhugamáli. Þú sérð ferli sem hægt er að bæta, áttar þig á virðissköpun, gerir áætlun, framkvæmir beturumbætur og kynnir verkefnið og lausnina inná við. Þú vilt vera í umhverfi þar sem nýjungar eru velkomnar og hlutirnir þróast hratt.

Fríðindi í starfi
  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift
  • Streymisveitu Sýnar og Viaplay
  • Árlegan heilsustyrk
  • Árlegan símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Auglýsing birt10. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar