Umhverfissvið
Umhverfissvið
Umhverfissvið

Verkefnastjóri framkvæmda - hafnarmannvirki

Um er að ræða nýtt 100% framtíðarstarf á Umhverfisviði. Upphaf starfs er samkomulagsatriði.

Verkefnastjóri framkvæmda starfar með teymi á sviðinu. Megin tilgangur og markmið starfsins er umsjón og eftirlit með uppbyggingu og viðhaldi hafnarmannvirkja í höfnum Múlaþings, ásamt öðrum spennandi framkvæmdarverkefnum á sviðinu. Óskað er eftir öflugum einstaklingi í góðan hóp starfsfólks, sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi.

Næsti yfirmaður er sviðsstjóri framkvæmda.

Starfskraftur er með fasta starfsstöð á einni af fjórum skrifstofum Múlaþings; Egilsstöðum, Borgarfirði eystri, Djúpavogi eða Seyðisfirði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Utanumhald um byggingar og mannvirki í eigu hafna Múlaþings og eignasjóðs.
  • Gerð viðhaldsáætlana og umsjón með viðhaldi.
  • Greining og ráðgjöf varðandi mannvirkjaþörf hafna.
  • Samskipti við forstöðumenn stofnana.
  • Umsjón með nýframkvæmdum.
  • Umsjón með gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana sem og útboðsgagna.
  • Samskipti við hönnuði og verktaka, sitja verkfundi.
  • Árlegar úttektir eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Krafist er háskólaprófs á grunnstigi (BA/BS) í verk-, tækni- eða byggingarfræði.
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
  • Góð þekking og reynsla á sviði framkvæmda.
  • Iðnmenntun er kostur.
  • Reynsla af verkefnastjórnun og gerð áætlana.
  • Mikil samskipta- og samstarfshæfni og góð þjónustulund.
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Frumkvæði og öguð vinnubrögð.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í máli og ritun
Fríðindi í starfi

Sveigjanlegur vinnutími, heilsueflingastyrkur.

Auglýsing birt13. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bakki 1, 765 Djúpivogur
Fjarðarborg , 720 Borgarfjörður (eystri)
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Ránargata 2, 710 Seyðisfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TóbakslausPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar