
Verkefnastjóri framkvæmda
ALVA Capital leitar að öflugum verkefnastjóra til að stýra framkvæmdaverkefnum innan ört vaxandi eignasafns félagsins á sviði fasteignaþróunar.
Félagið hefur byggt upp fjölbreytt safn hótel- og annarra fasteigna í Reykjavík og fram undan eru meðal annars Valhöll og fleiri þróunarverkefni.
Viðkomandi ber ábyrgð á verkefnastýringu, verkbókhaldi, innkaupum og kostnaðareftirliti framkvæmda og verður lykilaðili í að móta og bæta skipulag framkvæmdaverkefna innan félagsins.
-
Verkefnastýring, rekstur og yfirumsjón með framkvæmdaverkefnum
-
Gerð og eftirfylgni tíma-, kostnaðar- og greiðsluáætlana
-
Verkbókhald, yfirferð verktakareikninga og samanburður framvindu við áætlanir
-
Kostnaðareftirlit, uppgjör verkefna og skýrslugjöf um framvindu og frávik
-
Innkaup á efni og þjónustu og yfirumsjón með verðfyrirspurnum og útboðum
-
Umsjón með samskiptum við hönnuði, verktaka og aðra hagaðila
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem byggingarverkfræði, byggingartæknifræði, byggingarfræði eða önnur sambærileg menntun
-
Reynsla af verkefnastjórnun verklegra framkvæmda
-
Reynsla af verkbókhaldi og kostnaðareftirliti
-
Geta til að lesa teikningar og vinna kostnaðaráætlanir út frá þeim
-
Framúrskarandi samskipta-, skipulags- og leiðtogahæfni
-
Sjálfstæð, nákvæm og lausnamiðuð vinnubrögð
Íslenska
Enska










