
Sjóvá
Sjóvá leitast við að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem laðar að sér metnaðarfullt og hæft starfsfólk og skapar starfsmönnum tækifæri til að eflast og þróast í starfi.
Hjá okkur starfa um 200 manns, þar af um 170 í höfuðstöðvum okkar í Kringlunni 5 en Sjóvá er með útibú víðsvegar um landið. Meðalstarfsaldur er 10 ár og margir búa að langri og víðtækri starfsreynslu meðan aðrir eru að hefja sinn starfsferil með okkur.
Fyrirtækjamenning okkar einkennist af mikilli þjónustulund, fagmennsku og samheldni, í bland við keppnisskap og vináttu. Við leggjum áherslu á góð samskipti við viðskiptavini og hvert annað og höfum vegvísana okkar Við sýnum umhyggju, við byggjum á þekkingu, við erum kvik og við einföldum hlutina sem okkar leiðarljós í öllum samskiptum.

Spennandi starf í eignatjónum
Í boði er spennandi starf við mat og uppgjör fasteigna- og lausafjártjóna. Hjá Sjóvá starfar samstilltur hópur fólks sem leggur metnað í að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu
Helstu verkefni og ábyrgð
- ráðgjöf og þjónusta til viðskiptavina vegna tjónsatburða
- áætlanagerð vegna tjóna
- forvarna- og áhættuskoðanir
- eftirfylgni og samstarf við þjónustuaðila okkar
Menntunar- og hæfniskröfur
- tækni- eða iðnmenntun eða annað framhaldsnám sem nýtist í starfi
- reynsla af framkvæmdum og viðhaldi fasteigna
- gott vald á íslensku og ensku ásamt góðri tölvufærni
- rík þjónustulund og góð færni í mannlegum samskiptum
- jákvætt hugarfar, góð aðlögunarhæfni og geta til að vinna sjálfstætt
- reynsla af verkefnastýringu er kostur
Auglýsing birt28. júlí 2026
Umsóknarfrestur12. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kringlan 5, 103 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Smiður
Byggingakompaníið

Pípari óskast til starfa á Akureyri
HHS verktakar ehf

Construction Workers
Mosfell ehf.

Property Maintenance Worker
Bjargfastur ehf

Sérfræðingur í rannsóknum og gerð tækniblaða
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

Starfsmaður á verkstæði / Uppsetningar
Logoflex ehf

Sérfræðingur lagna- og loftræstikerfa
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur flugvallarinnviða
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Ez Verk ehf. Sérhæfir sig í Gluggaísetningum, Klæðningum
EZ Verk ehf.

Orkubú Vestfjarða - Ísafjörður - Starfsmaður í vinnuflokki
Orkubú Vestfjarða ohf

Blikksmiður / iðnaðarmaður í Borgarnesi
Límtré Vírnet ehf

Verkstjórar,Húsasmiðir eða menn með reynslu óskast
Verkhamrar ehf.