
Límtré Vírnet ehf
Límtré Vírnet er íslenskt iðnfyrirtæki og starfsstöðvar þess byggja á áratuga löngum framleiðsluferlum. Starfsfólk okkar er einnig með áratuga starfsreynslu við framleiðslu og sölu á gæðavörum fyrir byggingariðnaðinn á Íslandi.
Starfsstöðvar okkar eru á þremur stöðum á landinu. Höfuðstöðvar okkar eru á Lynghálsi, þar sem innkaupadeild, fjármálastjóri og byggingadeild er starfrækt ásamt afgreiðslu á helstu lagervörum fyrirtækisins. Í Borgarnesi er framleitt valsað stál og ál til klæðninga utanhúss og innanhúss, ásamt framleiðslu á milliveggjastoðum úr stáli.
Í Borgarnesi eru einnig reknar blikksmiðja og járnsmiðja.
Á Flúðum er svo framleiðsla á límtré og steinullareiningum.
Söludeildir fyrirtækisins er starfræktar á Lynghálsi 2 í Reykjavík og á Borgarbraut 74 í Borgarnesi.
Blikksmiður / iðnaðarmaður í Borgarnesi
Það er nóg að gera hjá okkur í Límtré Vírnet og óskum við eftir starfsmanni í blikksmiðju fyrirtækisins í Borgarnesi.
Leitað er að iðnaðarmanni með reynslu af blikksmíði eða húsasmíði, helst við klæðningar á húsum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni í blikksmiðju Límtré Vírnets í Borgarnesi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun er skilyrði
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnu
- Stundvísi og nákvæm vinnubrögð
- Grunnfærni í notkun tölvu og snjalltækja
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Almenn ökuréttindi
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Vinnutími er kl. 7:00–16:00 mánudaga til fimmtudaga og til kl. 14:10 á föstudögum.
- Framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki
- Fyrirmyndarfyrirtæki ársins hjá VR sl. ár.
- Góður vinnuandi
- Frábært mötuneyti þar sem boðið er upp á morgun- og hádegismat fyrir starfsmenn
Auglýsing birt28. júlí 2026
Umsóknarfrestur30. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgarbraut 74, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
HandlagniSmíðar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri hjá Bygging og Viðhald
Bygging og Viðhald ehf

Reynslumikill starfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum / Construction worker
Einingaverksmiðjan

Smiðir, byggingaverkamenn
Kjarnaverk ehf

Smiðir til starfa
B.Ó.Smiðir ehf

Húsasmiðir óskast
Byggingafélagið Stafninn ehf.

Óskum eftir smiðum til starfa
MT Ísland

Smiður/ Verkamaður Óskast til starfa
Þröstur Smiður ehf.

Húsasmiðir styttri vinnutími.
Þúsund Fjalir ehf

Húsasmíðameistari – Umhverfis- og skipulagssvið
Hafnarfjarðarbær

Carpenters for Interior Walls / Ciesle do scian wewnetrznych
Ístak hf

Stálsuðumaður / Steel Welder / Stalsvejser / Spawacz stali / Zavarivač čelika
VikNordik ehf.

Umsjónarmaður fasteigna og viðhalds
Heimaleiga