

Verkfræðingur eða tæknifræðingur í iðnaðardeild
Verkfræðistofan Norconsult á Íslandi kemur að fjölbreyttum og metnaðarfullum verkefnum um allt land og víðar. Í iðnaðardeild fyrirtækisins er unnið að ráðgjöf, hönnun og forritun stjórnkerfa fyrir fjölbreytta starfsemi.
Vegna áframhaldandi aukinna umsvifa leitum við nú að verkfræðingi eða tæknifræðingi til starfa í iðnaðardeild fyrirtækisins. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á stjórnkerfum og vill taka þátt í fjölbreyttum verkefnum.
Hjá Norconsult á Íslandi færð þú tækifæri til að vera hluti af öflugu teymi sérfræðinga með stuðningi eins stærsta ráðgjafafyrirtækis Norðurlanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf í tengslum við stjórnkerfi
- Hönnun, forritun og viðhald stjórnkerfa
- Forritun vegna gangasöfnunar
Við leitum að aðila með
- Háskólamenntun í verkfræði eða tæknifræði
- Reynslu af vinnu við stjórnkerfi er kostur
- Þekking á gagnagrunnum er kostur
- Góða tölvukunnáttu
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góða samskipta- og samstarfshæfni
Fríðindi í starfi eru til að mynda
- Tækifæri til að koma að metnaðarfullum og samfélagslega mikilvægum innviðaverkefnum hjá ört vaxandi stofu með sterkan starfsanda og mikla þekkingu
- Árleg tækifæri til hlutabréfakaupa á sérkjörum
- Glæsileg vinnuaðstaða í nýju húsnæði að Dalvegi 30A, í hjarta Kópavogs
- Frábært mötuneyti og líkamsræktaraðstaða í byggingunni
- Íþrótta- og samgöngustyrkur
- Símtækjastyrkur, greiddur farsímareikningur og heimanettenging
- Sveigjanlegur vinnutími
Um Norconsult
Norconsult á Íslandi er partur af alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki og jafnframt stærstu verkfræðistofu Noregs með yfir 7500 starfsmenn þar sem verkefnin spanna frá skipulagi innviða til verkfræði og arkitektúrs. Á íslandi eru unnin verkefn af ýmsum toga á sviðum iðnaðar og orku, innviða, mannvirkja og framkvæmda.
Á Íslandi starfa um 90 manns, þar af um 30 í verk- og tæknifræði og 60 í arkitektúr í sjálfstæðum einingum.
Nánari upplýsingar um vinnustaðinn finnur þú á nýrri heimasíðu www.norconsult.is.
Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is
Umsjón með starfinu hafa Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) og Jensína Kristín Böðvarsdóttir ([email protected]).
Enska










