Avians
Avians
Avians

Avians leitar að rafeindavirkja/tæknimanni til starfa

Avians leitar að öflugum rafeindavirkja/tæknimanni sem vill taka þátt í að byggja upp, reka og viðhalda tæknibúnaði sem tryggir örugga þjónustu í íslenska flugstjórnarsvæðinu.

Um er að ræða fullt starf á dagtíma með starfstöð á Nauthólsvegi í Reykjavik.

Við leitum að lausnamiðuðum og vönum manni til að styrkja öflugt og samhent teymi.

Um er að ræða krefjandi starf í vaxandi umhverfi þar er tækifæri til að kynnast og vinna við fjölbreytt kerfi sem hafa bein áhrif á öryggi og þjónustu íslenska flugstjórnarsvæðisins.

Frekari upplýsingar veitir Óskar Egilsson í gegnum netfangið [email protected]

_________________________________________________________________________________________________

Afhverju Avians?

Hjá okkur færðu að:

🌍 Taka þátt í að tryggja öryggi allra þeirra sem ferðast um íslenska flugstjórnarsvæðið

🚁 Upplifa fjölbreytt verkefni á ólíkum stöðum víðs vegar um landið

⚡ Vinna með tæknibúnað og spennandi kerfi sem ekki er að finna annars staðar.

👥 Verða hluti af sterku teymi í góðri starfsaðstöðu þar sem samvinna og jákvæð menning eru í fyrirrúmi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Viðhald, eftirlit og uppsetning á:

  • Búnaði og lögnum.
  • Almennum tækjabúnaði og upplýsingakerfum.
  • Sérhæfðum kerfum tengd flugleiðsögu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tæknimenntun eða rafeindavirkjun
  • Þekking á Cisco og Linux er kostur
  • Hæfni til að starfa sjálfstætt og í teymi
  • Lausnamiðað hugarfar
  • Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Bílpróf er skilyrði
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Nauthólsvegur 66, 102 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar