ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast

Hefur þú áhuga á jeppum og breytingum?

ÍSBAND leitar að starfsmanni til að sinna jeppabreytingum á verkstæðinu okkar að Smiðshöfða 5 í Reykjavík.

Starfið felst í breytingum á Jeep® og RAM. Breytingarnar eru staðlaðar 35" - 40" og vinnum með breytingapökkum frá þekktum framleiðendum á borð við AEV, TeraFlex og Falcon. Ekki er um að ræða sérsmíði eða stærra en 40" breytingar.

Erum bæði að leita að vönum breytingarmönnum og eins þeim sem vilja læra jeppabreytingar.

Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • 35" - 40" breytingar á Jeep® og RAM
  • Ásetning brettakanta
  • Minniháttar úrklippingar
  • Ásetning aukabúnaðar s.s. dráttarbeisli, loftdælu, úrhleypibúnað, gangbretti o.s.frv.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af jeppabreytingum er kostur
  • Bifvélavirki eða bifreiðasmiður er kostur
  • Góð samskiptahæfni og færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Ökuréttindi eru skilyrði
  • C1 bílpróf (pallbílapróf) er kostur
Auglýsing birt25. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Smiðshöfði 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.BifreiðasmíðiPathCreated with Sketch.BifvélavirkjunPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar