
HS Veitur hf
HS Veitur eru framsækið þekkingar- og þjónustufyrirtæki í veitustarfsemi sem telst til mikilvægra innviða. Hjá HS Veitum starfa um 100 starfsmenn á fjórum starfstöðvum sem sinna margvíslegum störfum. Fyrirtækið þjónar mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins og eru íbúar á veitusvæði HS Veitna rúmlega 84 þúsund.
Í fyrirtækinu ríkir jákvæður starfsandi sem einkennist af sterkri liðsheild og virðingu í samskiptum.

Verkstjóri veitukerfis í Vestmannaeyjum
HS Veitur leita að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf verkstjóra veitukerfa í Vestmannaeyjum.
HS-veitur reka vatns-, hita og rafveitu í Vestmannaeyjum ásamt varmadælustöð og kyndistöð til framleiðslu á heitu vatni.
Verkstjóri ber ábyrgð á stjórnun framkvæmdaflokka, umsjón með viðgerðum og daglegum rekstri, viðhaldsverkefnum og nýframkvæmdum veitukerfa í Vestmannaeyjum. Verkstjóri vinnur náið með rekstrarstjóra að hagkvæmum og öruggum rekstri dreifiveitunnar og góðri þjónustu við viðskiptavini á veitusvæðinu.
Viðkomandi þarf að hafa góða stjórnunar- og samskiptahæfileika og kunnáttu til að leysa fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og stuðningur við starfsfólk framkvæmdaflokka
- Skipulagning rekstrar, nýframkvæmda, viðgerða og viðhaldsverkefna
- Aðgerðastjórn vegna bilana eða vegna framkvæmda í veitukerfi
- Tryggja öryggi á verkstað og að öryggisstöðlum sé fylgt
- Samskipti og eftirfylgni vegna verka sem unninn eru af ytri verktökum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Stjórnunar reynsla og leiðtogahæfileikar
- Áhugi á að byggja upp og viðhalda góðri öryggismenningu
- Þjónustulund, samskiptahæfni og skipulagshæfileikar
- Sjálfstæði í starfi og hæfni til að vinna undir álagi
Auglýsing birt27. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Tangagata 1, 900 Vestmannaeyjar
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfskraftur í steinsmiðju óskast!
Fígaró náttúrusteinn

Framleiðslustjóri Þörungaverksmiðjunnar
Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk

Maintenance Technician | Össur
Embla Medical | Össur

Smiður
Félagsstofnun stúdenta

Verkstjóri í vöruhúsaþjónustu
Eimskip

Skoðunarmaður – Raka og mygluskoðanir
MT Ísland

Sérfræðingur í rafbúnaði í útibúi Johan Rönning, Akureyri
Johan Rönning

Sérfræðingur á viðhaldssviði / Maintenance Specialist
Alvotech hf

Brafa leitar af reyndum rafvirkjum
brafa

Starf í viðhaldsdeild
Gæðabakstur

Óskum eftir iðnaðarmönnum til starfa
MT Ísland

Viðgerðarmaður (dælur og loftpressur)
RK.raf ehf.