MT Ísland
MT Ísland

Skoðunarmaður – Raka og mygluskoðanir

MT Ísland ehf. leitar að öflugum einstaklingi í fullt starf við raka- og mygluskoðanir.

Vegna aukinna verkefna leitum við að metnaðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi til að sinna skoðunum, rakamælingum og úttektum vegna raka- og mygluvandamála í húsnæði.

Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér vettvangsskoðanir, rakamælingar, sýnatökur, greiningu á mögulegum orsökum raka og myglu, skráningu niðurstaðna og gerð skoðunarskýrslna. Viðkomandi mun vinna með fjölbreyttum hópi viðskiptavina, meðal annars einstaklingum, fyrirtækjum, fasteignafélögum og opinberum aðilum.

Reynsla úr byggingariðnaði er skilyrði. Reynsla af fasteignaskoðunum, rakamælingum eða sambærilegu starfi er stór kostur. Við leggjum mikla áherslu á rétt hugarfar og munum þjálfa réttan einstakling upp í þær aðferðir og verklag sem MT Ísland notar við raka- og mygluskoðanir.

Menntunar- og hæfniskröfur

Gerðar eru eftirfarandi kröfur til umsækjanda:

  • Hafi lokið sveinsprófi í húsasmíði, hærri menntun kostur en ekki skilyrði 
  • Er vandvirkur, skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum

  • Hefur góða tæknilega hugsun og áhuga á byggingum

  • Á auðvelt með að greina vandamál og leita orsaka

  • Hefur góða samskiptafærni og þjónustulund

  • Getur tjáð sig vel í rituðu og töluðu íslensku

  • Er með ökuréttindi

Fríðindi í starfi

Starfinu fylgir ökutæki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Raka- og ástandsskoðanir fasteigna

  • Mælingar og úttektir vegna raka- og mygluvandamála

  • Sýnataka og skráning niðurstaðna

  • Greining á orsökum raka og tillögur að næstu skrefum

  • Myndataka og vönduð skráning á vettvangi

  • Gerð faglegra skoðunarskýrslna

  • Samskipti við viðskiptavini og aðra fagaðila

Auglýsing birt27. ágúst 2026
Umsóknarfrestur15. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Turnahvarf 6, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar