

Verkstjóri í vöruhúsaþjónustu
Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi í starf verkstjóra í vöruhúsi á ört vaxandi starfssvæði Eimskip á Selfossi.
Hjá Eimskip á suðurlandi starfar öflugur og samhentur hópur fólks í fjölbreyttum störfum sem snúa að þjónustu og dreifingu á vörum til viðskiptavina á suðurlandi. Starfsstöðin er í dag að Háheiði 8 á Selfossi, en á haustmánuðum 2027 mun starfsemin flytjast í nýtt og sérhæft vöruhús á Selfossi. Breytingin mun skapa enn betri aðstöðu fyrir starfsfólk og styðja við áframhaldandi vöxt og þróun starfseminnar.
Þjónustusvæði stöðvarinnar nær yfir Árnes- og Rangárvallasýslu og innifelur þéttbýliskjarna eins og Selfoss, Hveragerði, Þorlákshöfn, Stokkseyri, Eyrarbakka, Borg, Laugarvatn, Reykholt, Flúðir, Hellu og Hvolsvöll auk dreifingar í dreifbýli.
Fyrir réttan aðila er í boði fjölbreytt, áhugavert og krefjandi starf með margvíslegum tækifærum.
- Að veita framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini, innri jafnt sem ytri
- Verkstjórn og skipulagning verkefna í vöruhúsi
- Skiplagning og forgagnsröðun vörudreifingar innan svæðis
- Tölvuvinna við skráningar, eftirlit og skipulagningu dreifingar
- Þáttaka í skipulagning á viðhaldi tækja og húsnæðis
- Almenn vöruhúsastörf
- Önnur tilfallandi verkefni
- Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Heiðarleiki, stundvísi og metnaður
- Starfsreynsla í vöruhúsi og við stjórnun er kostur
- Lyftararéttindi (J) eru æskileg
- Meirapróf (C/CE) er kostur
- Almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku, í töluðu og rituðu máli
- Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. samgöngustyrk og styrki vegna heilsuræktar, sálfræðiþjónustu og fleira
- Niðurgreiddur heitur hádegismatur í boði fyrir starfsfólk
Íslenska
Enska










