
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar sér um og ber ábyrgð á rekstri starfsstöðva sem þjónusta fatlað fólk og eldra fólk auk þess að styrkja og styðja forstöðumenn starfsstöðva í störfum sínum. Skrifstofa stafstöðva og þróunar ber einnig ábyrgð á innra eftirliti með starfsemi starfsstöðvanna, framkvæmd nauðsynlegra breytinga í þjónustunni og þróun nýrra úrræða. Skrifstofan er tengiliður velferðarsviðs við:
- Jöfnunarsjóð sveitarfélaga vegna framlaga í málaflokki fatlaðs fólks.
- Sjúkratryggingar Íslands vegna samninga um hjúkrunarrými og dagdvalir.
- Þau ráðuneyti sem málaflokkar fatlaðs fólks og eldra fólks falla undir hverju sinni.
Þjónustan sem veitt er gegnum skrifstofu starfsstöðva og þróunar miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður viðkomandi sem geta verið margskonar:
- Heimili, íbúðakjarnar og stuðningur á eigin heimili fyrir fatlað fólk í samræmi við þarfir þess og óskir.
- Hæfing, starfsþjálfun,vernduð vinna og samfélagshús sem öllum er ætlað að veita þjálfun og stuðning sem miðar að því að auka hæfni þess til starfa og þátttöku í daglegu lífi eða á almennum vinnumarkaði.
- Hjúkrunarsambýli og dagdeild fyrir eldra fólk með heilabilun.
- Félagsstarf eldra fólks sem býður upp á fjölbreytta, skipulagða dagskrá yfir vetrarmánuðina í þremur félagsmiðstöðum bæjarins.

Deildarstjóri í íbúðakjarna fyrir fólk með fatlanir
Velferðarsvið Kópavogsbæjar auglýsir eftir deildarstjóra í íbúðakjarna fyrir fólk með fatlanir.
Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi íbúðakjarnans og tekur þátt í faglegu starfi með yfirmanni og stjórnendateymi. Deildarstjóri hefur umsjón með framkvæmd þjónustu við íbúa og vinnur með þeim á grundvelli áætlana.
Starfið felur í sér víðtæk verkefni sem tryggja að íbúar fái viðeigandi, faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu sem stuðlar að bættum lífsgæðum.
Um er að ræða fullt starf í blandaðri vaktavinnu, þó að mestu leyti skrifstofustörf á dagvinnutíma.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með framkvæmd þjónustu og faglegri stefnu í samstarfi við forstöðumann.
- Faglegur stuðningur við teymisstjóra og starfsfólk.
- Skipulagning daglegra verkefna, vakta, þjálfunar og fræðslu starfsfólks.
- Eftirlit með því að þjónusta, skráningar og verklag séu í samræmi við þjónustuáætlanir, verkferla og faglegar kröfur.
- Umsjón með handbókum, verklýsingum, atvikaskráningum, tölfræði og greiningu gagna.
- Þátttaka í þróun og umbótum á þjónustu í samræmi við lög, reglugerðir og faglega stefnu.
- Umsjón með innkaupum fyrir skrifstofu og starfsaðstöðu.
- Einstaklingsmiðaður stuðningur við íbúa í daglegu lífi, þar á meðal við athafnir daglegs lífs, fjármál og heilbrigðisþjónustu.
- Samstarf og samskipti við íbúa, aðstandendur, starfsfólk, heilbrigðisstarfsfólk og aðra samstarfsaðila.
- Afleysing forstöðumanns í fjarveru hans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á fyrsta stigi (BA/BS) í þroskaþjálfun eða önnur menntun sem gæti nýst í starfi.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki.
- Þekking á leiðandi hugmyndafræði í þjónustu við fatlað fólk, þ.e. sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.
- Þekking á lögum um þjónustu við fatlað fólk.
- Reynsla af teymisvinnu og geta til að leiðbeina og þjálfa.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Ökuréttindi æskileg.
- Hreint sakavottorð.
- Gott líkamlegt ástand.
Fríðindi í starfi
- Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar bæjarins.
Auglýsing birt11. ágúst 2026
Umsóknarfrestur1. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFrumkvæðiHreint sakavottorðLeiðtogahæfniLíkamlegt hreystiMannleg samskiptiMetnaðurOpinber stjórnsýslaSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinnaVinna undir álagi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Traust aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Verkefnisstjóri fjármála við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar
Reykjanesbær

Aðstoðarkona óskast í 67% starf á Akureyri
NPA miðstöðin

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk- Smárahvammur
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar- Nesvellir
Hrafnista

Sérfræðingur í umsýslu endurgreiðslna
Kvikmyndamiðstöð Íslands

Ert þú með framúrskarandi þjónustulund?
Pant

Ungmennahraun - starfsfólk vantar
Garðabær

Útstillingahönnuður H&M
H&M

Þroskaþjálfi á barna- og unglingageðdeild
Landspítali

Aðstoðarverslunarstjóri - BYKO Granda
Byko