
Sérfræðingur í umsýslu endurgreiðslna
Kvikmyndamiðstöð Íslands óskar eftir að ráða drífandi einstakling með faglegan styrk, metnað, frumkvæði og góða samskiptahæfni til að sinna starfi sérfræðings í umsýslu endurgreiðslukerfis vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf á vettvangi íslenskrar kvikmynda- og sjónvarpsgerðar þar sem viðkomandi vinnur náið með ýmsum hagaðilum, þ.m.t. nefnd um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar, framleiðendum, umsækjendum, endurskoðendum og stjórnvöldum.
Endurgreiðslukerfið byggir á lögum nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi og er ætlað að efla innlenda kvikmyndagerð og stuðla að alþjóðlegri framleiðslu hér á landi.
Starfið krefst nákvæmni, faglegra vinnubragða og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi umsækjenda og samstarfsaðila. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem hefur áhuga á kvikmyndagerð og opinberri stjórnsýslu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsýsla umsókna um vilyrði og útborgun endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar
- Yfirferð umsóknargagna
- Samskipti og leiðbeiningar til umsækjenda og annarra hagaðila
- Undirbúningur mála fyrir fundi nefndar um endurgreiðslur
- Frágangur mála, umsýsla gagna og skjalavarsla
- Þátttaka í þróun verklags, leiðbeininga og umbótaverkefna tengdum endurgreiðslukerfinu
- Ýmis önnur tilfallandi verkefni á skrifstofu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Þekking eða reynsla af kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu
- Reynsla af yfirferð fjárhagsgagna, bókhalds eða uppgjöra
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Frumkvæði, nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi
Íslenska
Enska










