

Ráðgjafi í netöryggisteymi Deloitte
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á netöryggi, þar á meðal regluverki, áhættustýringu og stjórnarháttum, til að styrkja vaxandi netöryggisteymi okkar.
Við veitum heildstæða netöryggisráðgjöf með áherslu á reglufylgni, úttektir og eftirlit á sviði netöryggis, áhættustýringu ásamt uppbyggingu öflugra stjórnarhátta og öryggisráðstafana. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, er tilbúinn að bretta upp ermar og taka virkan taka þátt í að greina ferla og verklag og efla netöryggi og netöryggisvarnir viðskiptavina.
Meðal verkefna sem netöryggisráðgjöf sinnir eru eftirfarandi:
-
Úttektir, gloppugreiningar og mat á fylgni við lög, reglur, stjórnunarkerfi eða innra verklag s.s. DORA, NIS2 og ISO27001
-
Alhliða ráðgjöf og stefnumótun á sviði netöryggis og rekstrarsamfellu m.a. til að þróa og bæta netöryggisverklag
-
Mat á stjórnarháttum og stöðu netöryggisráðstafana
-
Áhættumat, áhættustýring og greining netöryggisáhættu
-
Stjórnendaþjálfun og fræðsla
Sem hluti af netöryggisteymi Deloitte muntu aðstoða viðskiptavini við að innleiða, efla og fylgja netöryggiskröfum og styðja þá í gegnum áskoranir sem leiða af breyttum netógnum og rekstrarumhverfi ásamt því að vinna að bættum viðnámsþrótti og rekstrarsamfellu.
Hjá Deloitte færð þú tækifæri til að vera hluti af öflugu netöryggissamfélagi á alþjóðavísu, vinna með leiðandi fyrirtækjum og stofnunum, kynnast fjölbreyttum atvinnugreinum og taka þátt í netöryggisverkefnum sem skipta sköpum fyrir rekstrarsamfellu og traust viðskiptavina.
-
Háskólamenntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi
-
Þekking og reynsla af netöryggismálum, regluverki og/eða stjórnunarkerfum netöryggis
-
Hæfni til að greina flókin verkefni af öryggi og aðlagast hratt nýjum áskorunum
-
Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu
-
Fagmennska, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
-
Hæfni í að setja fram skýran, hnitmiðaðan og faglegan texta og miðla upplýsingum á skiljanlegan hátt
-
Gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli
-
Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu og skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini
-
Áhugi á gervigreind, áhættustýringu og innri/ytri úttektum
-
Viðeigandi vottanir (ISO27001; CISSP, CISA, CISM, Security+ eða sambærilegar vottanir) eru kostur
- Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
- Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
- Góðan aðbúnað í höfuðstöðvum okkar á Dalvegi
- Styrki til nýbakaðra foreldra
- Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
- Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi
Íslenska
Enska










