
Bayern líf
Bayern Líf býður upp á einn öruggasta lífeyris- og séreignarsparnað á Íslandi, Bayern Líf. Bayern Líf tilheyri S-Finanzgruppe sem er ein stærsta fjármálasamsteypa í heimi. Bayern Líf hefur tryggt Íslendinga síðan 2007 og eru 10% Íslendinga nú þegar viðskiptavinir Bayern Líf.

Þjónustufulltrúi
Langar þig að starfa við fjármál, lánamál og þjónustu við viðskiptavini?
Við leitum að metnaðarfullum, jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi í fjölbreytt starf á skrifstofu okkar. Starfið felur meðal annars í sér þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina, með sérstakri áherslu á lánamál, uppgreiðslu lána og endurfjármögnun.
Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á eða mikinn áhuga á íslenska lána- og fjármálaumhverfinu. Mikilvægt er að eiga auðvelt með að greina þarfir viðskiptavina, útskýra mismunandi valkosti á skýran hátt og fylgja málum eftir af fagmennsku, vandvirkni og nákvæmni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Ráðgjöf og upplýsingagjöf vegna lánamála
- Aðstoð við greiningu á uppgreiðslu og endurfjármögnun lána
- Eftirfylgni með málum viðskiptavina
- Móttaka, yfirferð og utanumhald gagna og umsókna
- Almenn skrifstofu- og þjónustustörf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Þekking á eða mikill áhugi á lánaumhverfinu á Íslandi
- Reynsla af fjármála-, banka- eða þjónustustörfum er kostur
- Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Nákvæm, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt3. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Símsvörun - þjónustuver
Teitur

Þjónusturáðgjafi
Félagsbústaðir

Ritari á leikskóla
Sveitarfélagið Hornafjörður

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali

Bókari hjá Akraneskaupstað
Akraneskaupstaður

Fjölbreytt verkefni á sviði löginnheimtu
Motus

Sérfræðingur í Rannsóknaþjónustu
Háskólinn í Reykjavík

STÖRF Á FJÁRMÁLASVIÐI
Travel Connect

Operations Control Officer
Air Atlanta Icelandic

Sala og skipulagning skyndihjálpar (50% starf)
Rauði krossinn á Íslandi

Dýralæknir / fagráðgjafi í heilbrigði og velferð dýra
Petmark ehf

Leiðtogi í umhverfis- og skipulagsmálum
Sveitarfélagið Hornafjörður