Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi

Sala og skipulagning skyndihjálpar

Verkefnafulltrúi í Skyndihjálparteymi

Rauði krossinn á Íslandi óskar eftir jákvæðum og framsýnum einstaklingi í 50% starf sem verkefnafulltrúi í skyndihjálparteymi félagsins. Starfið hentar vel skipulögðum einstaklingi sem hefur ríka þjónustulund og áhuga á að stuðla að öryggi og velferð samfélagsins.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Farið verður yfir umsóknir jafnóðum og geta viðræður við umsækjendur hafist áður en frestur rennur út.

Um starfið

Verkefnafulltrúi skyndihjálparteymis sinnir fjölbreyttum og samfélagslega mikilvægum verkefnum sem tengjast skyndihjálparnámskeiðum Rauða krossins. Í starfinu felst m.a. skipulagning námskeiða, samstarf við leiðbeinendur og stuðningur við fjáröflunar- og kynningarstarf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipuleggja námskeið í almennri skyndihjálp fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir.

  • Halda utan um samstarf við leiðbeinendur.

  • Hafa umsjón með skyndihjálparbúnaði.

  • Styðja við fjáröflunarverkefni og önnur tilfallandi verkefni á sviði skyndihjálpar.

Hæfni og reynsla

  • Ekki er gerð krafa um tiltekna menntun, en reynsla sem nýtist í starfi er mikils metin.

  • Reynsla af sölu, viðburðahaldi, kynningar- og markaðsmálum er kostur.

  • Framúrskarandi skipulagshæfni, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg – reynsla af Salesforce er kostur.

  • Þekking á starfi Rauða krossins er kostur.

Við bjóðum

  • Hvetjandi og samfélagslega meðvitaðan vinnustað.

  • Íþróttastyrk og samgöngustyrk.

  • Sveigjanlegan vinnutíma.

  • Virkt starfsmannafélag.
  • Tækifæri til að vinna að málefnum sem skipta máli og hafa raunveruleg áhrif.

Umsóknarferli

Umsóknir berast í gegnum Alfreð og skulu innihalda ferilskrá og kynningarbréf. Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og uppruna til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Sigurlaug Rúnarsdóttir, teymisstjóri skyndihjálpar, [email protected].

Auglýsing birt16. september 2026
Umsóknarfrestur27. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.SalesforcePathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar