Teya Iceland
Teya Iceland
Teya Iceland

Sölufulltrúi | Business Development Representative

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi í söluteymi Teya á Íslandi. Hjá Teya vinnum við að því að hjálpa fyrirtækjum að einfalda reksturinn með snjöllum greiðslu- og hugbúnaðarlausnum sem skapa raunverulegt virði í daglegum rekstri.

Söluteymið samanstendur af kraftmiklu fólki þar sem sterk liðsheild er lykilatriði. Þú verður mikilvægur partur af teymi sem vinnur að sameiginlegum markmiðum, finnur ný viðskiptatækifæri og byggir upp góð tengsl við mögulega viðskiptavini.

Við leggjum áherslu á fagmennsku, gagnsæi og góða upplifun og leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á sölu og vill vaxa og þróa færni sína með öflugu teymi í alþjóðlegu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Koma auga á ný viðskiptatækifæri og mögulega viðskiptavini
  • Hafa frumkvæði að samskiptum og byggja upp góð viðskiptatengsl
  • Greina þarfir viðskiptavina og kynna lausnir Teya
  • Tilboðsgerð og eftirfylgni
  • Framkvæma markaðs- og fyrirtækjagreiningar eftir þörfum
  • Vinna með sölumarkmið og lykilmælikvarða
  • Skrá og halda utan um sölumál í CRM kerfi
  • Samstarf við teymi innan fyrirtækisins eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum, rík þjónustulund og jákvætt hugarfar
  • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri
  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í nánu samstarfi við teymi
  • Lausnamiðuð hugsun og vaxtarhugarfar
  • Áhugi á sölu, tækni og stafrænum lausnum
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku
  • Reynsla af sölu eða þjónustu er kostur
  • Reynsla af sölu hugbúnaðarlausna er kostur
  • Þekking á sölu- og bókhaldskerfum er kostur
Fríðindi í starfi
  • Möguleiki á árangurstengdum greiðslum
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Gjaldfrjálst aðgengi að léttu fæði á vinnutíma
  • Niðurgreiddur hádegismatur í mötuneyti
  • Árlegur íþróttastyrkur
  • Árlegt heilsufarsmat og stuðningur við andlega heilsu
  • Tækifæri til að þróast í starfi hjá alþjóðlegu fyrirtæki
  • Frábær starfsandi, reglulegir viðburðir og virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt14. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar