
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni
Systurfyrirtækin Eirberg og Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf.
Eirberg ehf. er framsækið verslunar-, innflutnings- og þjónustufyrirtæki sem hefur á að skipa þjónustumiðuðu starfsfólki. Markmið okkar eru að auka lífsgæði, efla heilsu, auðvelda störf og daglegt líf.
Verslun okkar hefur nokkra sérstöðu hvað vöruval og gæði snerta þar sem góð upplifun viðskiptavina er okkur mikilvæg.
- Við berum umhyggju fyrir vellíðan viðskiptavina okkar, hlustum og veitum góða þjónustu.
- Við njótum þess að mæta þörfum viðskiptavina okkar með góðri ráðgjöf og leggjum okkur fram við að hjálpa fólki að auka lífsgæði sín.
- Við mætum hverjum og einum viðskiptavini þar sem hann er og finnum í sameiningu leiðir sem gera viðskiptavininum kleift að njóta sín og eigin heilsu.
Systurfyrirækið Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. býður m.a. hjálpartæki, hjólastóla, heilbrigðisvörur og faglega ráðgjöf.
Þar starfa hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, þroskaþjálfi og aðrir sérfræðingar í velferðartækni. Markmiðin eru að auðvelda fólki daglegt líf, styðja einstaklinga til sjálfshjálpar, auka vinnuvernd og hagræði.
Stuðlaberg er með samninga við Sjúkratryggingar Íslands m.a. um:
• Bað- og salernishjálpartæki
• Barna- og hjúkrunarrúm
• Gönguhjálpartæki
• Hjólastóla og hjálparmótora
• Viðgerðarþjónustu hjálpartækja
Stuðlaberg er með rammasamning við Fjársýslu Ríkisins m.a. um:
• Rafknúin Hjúkrunar- og Sjúkrarúm
• Náttborð
• Rúmgálga og Hliðarstuðning
• Flutningsbretti og Snúningsdiska
• Flutningssegl og Lyftara
• Loftfest lyftukerfi
• Sturtustóla
• Upphækkun á salerni
• Bekken og Þvagflöskur
• Göngugrindur
• Hjólastóla
• Hnakkastóla á hjólum
• Lyftihægindastóla
• Blöðruskanna og Lífsmarkamæla
• Krómvagna og Stálborð
• Rusla- og Taugrindur
• Tölvu- og Lyfjavagna
Söluráðgjöf Stuðlabergs á sviði stóma- og þvagleggja er sú viðamesta hér á landi og er í höndum hjúkrunarfræðinga sem hlotið hafa sérþjálfun framleiðenda. Veitt er persónuleg aðstoð við að finna hentugar vörur á þessu sviði.

Sölufulltrúi í verslun Stórhöfða 25 - hlutastarf
Óskum eftir að ráða til okkar áreiðanlega og jákvæða einstaklinga við sölu-, þjónustu-, afgreiðslu og áfyllingar í verslun okkar að Stórhöfða 25.
Um er að ræða tvö stöðugildi sem skipta með sér 100% starfi. Skipulag vinnutíma er eftirfarandi: Aðra vikuna er unnið þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag milli klukkan 10-18 og hina vikuna mánudag og föstudag kl. 10-18. Auk þess er um að ræða einn laugardag í mánuði fyrir hvort stöðugildið, kl. 11-16.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vörusala og afgreiðsla í verslun
- Kynna vörur, gæði og eiginleika þeirra
- Hlusta á óskir viðskiptavina og veita góða þjónustu
- Vöruframstillingar, áfyllingar og tínsla af lager
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu- og þjónustustörfum æskileg
- Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta og hreint sakavottorð eru skilyrði
- Starfsmaður sé kurteis og jákvæður
- Stundvísi, almenn hreysti og reglusemi eru áskilin
Auglýsing birt14. september 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 25, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaJákvæðniLíkamlegt hreystiSölumennskaStundvísiVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Söluráðgjafi í heimilistækjadeild / hlutastarf
Rafha - Kvik

Snyrtivöruráðgjafi í Beautybox
Beautybox

Sölumaður hjá Fífa barnavöruverslun
Fífa barnavöruverslun

Sölumaður í hlutastarf hjá Fífu barnavöruverslun
Fífa barnavöruverslun

Nettó Hrísalundi - Aðstoðarverslunarstjóri
Nettó

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Nettó Aðaltorgi snyrtivörudeild - NÝ VERSLUN
Nettó

Fulltrúi í tiltekt og pökkun pantana - Fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Starfsmaður í Marc O'Polo
Marc O'Polo Kringlunni

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs