
Fulltrúi á Vinnumarkaðs- og félagsmálasviði
Vilt þú leggja þitt af mörkum í baráttunni fyrir réttindum og bættum kjörum vinnandi fólks?
Efling leitar að öflugum fulltrúa sem vill vinna að hagsmunagæslu Eflingarfélaga á vinnustöðum þeirra. Starfið felur meðal annars í sér ráðgjöf og úrlausn erinda, málavinnslu vegna réttindamála og náið samstarf við félagsfólk og trúnaðarmenn auk samskipta við atvinnurekendur.
Leitað er að einstaklingi sem á auðvelt með mannleg samskipti, vinnur sjálfstætt og skipulega og hefur metnað til að stuðla að réttlæti og bættum kjörum fólks á vinnumarkaði.
Fulltrúi er hluti af teymi á Vinnumarkaðs- og félagsmálasviði og starfar undir stjórn sviðsstjóra.
Verkefni og ábyrgð:
- Svörun flóknari erinda félagsfólks.
- Samskipti, ráðgjöf og stuðningur við trúnaðarmenn.
- Málavinnsla, ss. samskipti við atvinnurekanda f.h. félagsmanns og undirbúningur og útsending kröfubréfa.
- Öflun trúnaðarmanna.
- Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum tengt þróun og hagsmunagæslu félagsfólks í geiranum, bæði í samstarfi innan húss og við utanaðkomandi aðila.
- Vinnustaðaeftirlit.
Aukin ábyrgð í starfi:
Starfsmaður getur átt völ á aukinni ábyrgð í starfi, í því felst eftirfarandi:
- Þátttaka í smíði á fræðslu- og kynningarefni tengt réttindum á vinnumarkaði.
- Þátttaka í fræðslu og þjálfun tengt réttindum á vinnumarkaði bæði til félagsfólks og trúnaðarmanna.
- Þátttaka og aðstoð við undirbúning og framkvæmd kjarasamningagerðar og önnur samskipti við viðsemjendur félagsins eftir því sem við á.
- Skiptist á við aðra starfsmenn teymis um að gegna stöðu teymisritara yfir skilgreint tímabil í senn. Teymisritari sér um fundargerðir teymisfunda og undirbúning gagna fyrir geiraskýrslu.
- Tekur að sér meginábyrgð á utanumhaldi tengt tilteknum kjarasamningi eða málefnum tiltekins undirhóps innan geirans.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af vinnuréttindamálum, ss. launaútreikningi og smíði kröfubréfa.
- Áhugi á vinnuaðstæðum og hagsmunabaráttu félagsfólks í Eflingu.
- Ánægja af að vinna með fólki og að vinna í hóp.
- Færni til að vinna sjálfstætt og ljúka verkefnum.
- Háskólapróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Góð tök á töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku. Önnur tungumál t.d. pólska og Norðurlandamál kostur.
Efling stéttarfélag er í dag eitt stærsta og öflugasta stéttarfélag landsins. Eflingarfélagar bera uppi íslenskt samfélag, þeir sinna grunnstoðum þess, vinna við umönnun, ræstingu, ferðaþjónustu og þjónustu auk fjölda annarra starfa verkafólks. Þetta eru störf sem halda samfélaginu gangandi en hafa lengi verið vanmetin og vangreidd. Efling berst fyrir réttlæti, jöfnuði og sanngjarnri hlutdeild félagsmanna sinna í verðmætasköpun samfélagsins.
Skrifstofa Eflingar stéttarfélags sinnir fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að tryggja félagsfólki réttindi, bætt kjör og öryggi á vinnumarkaði. Meðal kjarnastarfsemi félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna og veita aðstoð ef grunur leikur á að lög eða kjarasamningar séu brotin.
Umsóknarfrestur er til og með 23. september nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is
Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Bjarki Pétursson ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska










