Faxaflóahafnir sf.
Faxaflóahafnir sf.

Bókhaldsfulltrúi í fjármáladeild

Faxaflóahafnir leita að metnaðarfullum einstakling
í starf bókhaldsfulltrúa í fjármáladeild

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
* Skráning og bókun innkaupareikninga í fjárhagskerfi
* Sölureikningagerð
* Eftirfylgni með innheimtu
* Samskipti við viðskiptavini og lánadrottna
* Almenn aðstoð við verkefni fjármáladeildar
* Önnur tilfallandi verkefni á viðskiptasviði

Menntunar- og hæfniskröfur
* Haldgóð reynsla og þekking á bókhaldi og afstemmingum
* Reynsla af bókhaldskerfum. Reynsla og/eða þekking á Dynamics 365
* Business Central kostur
* Góð kunnátta á Excel
* Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða viðurkenndur bókari
* Sjálfstæði og góð samskiptahæfni
* Hæfni til að vinna í hópum

Faxaflóahafnir er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 80 manns og er
umráðasvæði hennar í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi.
Fyrirtækið leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum
auk þess að vera í vegferð að þróa snjallar og grænar hafnir.
Sá einstaklingar sem við leitum að í starfið þarf að hafa góða hæfni í mannlegum
samskiptum, vera sjálfstæður í starfi og hafa haldgóða reynslu til viðkomandi
verkefna. Ef þú ert slíkur einstaklingur þá viljum við heyra frá þér.

Starfsmaðurinn mun hafa aðstöðu í Hafnarhúsinu - skrifstofu Faxaflóahafna, Tryggvagötu 17 í Reykjavík.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Friðrik Þór Hjálmarsson sviðsstjóri Viðskiptasviðs.
[email protected]
Við hvetjum hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk til að sækja um starfið, óháð kyni, en fyrirtækið hefur skýra jafnréttisstefnu og vill auka fjölbreytileika í starfsemi sinni. Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna á netfangið [email protected], eigi síðar en sunnudaginn 27. september n.k.

Auglýsing birt14. september 2026
Umsóknarfrestur27. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Tryggvagata 17, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.ReikningagerðPathCreated with Sketch.Uppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar