
Hnit Artelia
Hnit Artelia er staðsett á Háaleitisbraut 58-60 í Reykjavík. Hjá fyrirtækinu starfa nú tæplega 50 starfsmenn, sem saman móta samheldinn hóp sérfræðinga sem saman takast á við fjölbreytt verkefni. Fyrirtækið er hluti af Artelia Group, sem er alþjóðleg verkfræðistofa með yfir 11.000 starfsmenn, þar af 1.750 á norðurlöndunum. Samstarf og samlegð með skrifstofum erlendis gefur starfsmönnum tækifæri til að koma að spennandi verkefnum á erlendri grundu, og tengjast öðrum starfsstöðvum í verkefnum og þekkingarmiðlun.

Sérfræðingur í hönnun lagna og loftræsingar
Við hjá Hnit Artelia leitum að reyndum hönnuði í fjölbreytt verkefni á sviði lagna- og loftræsihönnunar. Starfið felur m.a. í sér hönnun lagna- og loftræsikerfa í nýbyggingum og við endurbætur á eldra húsnæði, ásamt gerð útboðsgagna og áætlana.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni sem þú sem lagna- og loftræsihönnuður munt fást við:
- Koma að og/eða stýra fjölbreyttum verkefnum, stórum sem smáum, frá frumhönnun og þarfagreiningu til fullnaðarhönnunar, útboðsgagnagerðar og eftirfylgni á framkvæmdatíma.
- Hanna hita-, neysluvatns-, fráveitu- og loftræsikerfi, vinna útreikninga og velja búnað. Útbúa teikningar, magntölur, verklýsingar og kostnaðaráætlanir með áherslu á orkunýtni, innivist og hagkvæman rekstur. Einnig gefst kostur á að sinna veituverkefnum, svo sem hönnun fráveitu- og vatnsveitukerfa.
- Samræma lagna- og loftræsihönnun við arkitekta og önnur fagsvið, innan og utan Hnit Artelia.
- Tryggja framvindu og gæði hönnunar, fylgja gildandi reglugerðum og stöðlum og stuðla að ánægju viðskiptavina og notenda.
- Skoða ástand á núverandi búnaði og koma með tillögur að úrbótum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur lokið námi í verkfræði eða tæknifræði sem nýtist við lagna- og loftræsihönnun; M.Sc. gráða er æskileg.
- Hefur reynslu af lagna- og loftræsihönnun bygginga og getur unnið sjálfstætt að hönnun, útreikningum og gerð hönnunargagna.
- Hefur þekkingu á viðeigandi reglugerðum og stöðlum og reynslu af hönnunarhugbúnaði; kunnátta í Revit og BIM-vinnulagi er æskilegt.
- Býr yfir mjög góðri samskipta-, skipulags- og samvinnuhæfni.
- Hefur jákvætt viðhorf, frumkvæði og lausnamiðaða nálgun.
- Hefur sjálfstæð og öguð vinnubrögð og leggur áherslu á vönduð hönnunargögn.
- Býr yfir góðri kunnáttu í íslensku eða ensku; kunnátta í norðurlandatungumáli er kostur.
Auglýsing birt12. nóvember 2026
Umsóknarfrestur3. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Háaleitisbraut 58-60 58R, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í stjórnun flutningskerfis
Landsnet hf.

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Grindavíkurbær

Verkefnastjóri, gæðatrygging (Quality Assurance Project Manager)
Ísteka

Sérfræðingur, gæðatrygging (Quality Assurance Specialist)
Ísteka

Launafulltrúi hjá Akraneskaupstað
Akraneskaupstaður

Production Specialist - Mechanic
DTE

Sérfræðingur í teymi þróunar og auðlinda jarðvarma
Landsvirkjun

Framkvæmdastjóri framkvæmda
Alva Capital ehf.

Verkefnastjóri framkvæmda
Alva Capital ehf.

Sérfræðingur í bókhaldsdeild
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Sérfræðingur í fjarskiptatækni og innviðum
Fjarskiptastofa

Innkaupa- og tollafulltrúi
Samhentir