
Landsnet hf.
Landsnet er öflugt þekkingarfyrirtæki sem fæst við mikilvæg verkefni í þágu samfélagsins. Við setjum öryggi starfsfólks í forgrunn og eflum þekkingu og færni í framsækinni menningu.
Við byggjum upp og rekum innviði sem tengja samfélagið saman og tryggja að raforka skili sér þangað sem hennar er þörf. Við styðjum við lífsgæði fólks, verðmætasköpun atvinnulífsins, aukið öryggi og sjálfbæra þróun.

Sérfræðingur í stjórnun flutningskerfis
Við hjá Landsneti leitum að sérfræðingi í stjórnun flutningskerfis til að ganga til liðs við okkur! Í starfinu tekur þú virkan þátt í stjórnun flutningskerfis raforku Íslands og vinnur náið með öflugu teymi sérfræðinga sem tryggir stöðugan og áreiðanlegan raforkuflutning í rauntíma.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þú munt, í samstarfi við teymi sérfræðinga, sjá um rauntímastýringu flutningskerfis raforku, stjórnun viðhaldsaðgerða og viðbrögð við truflunum. Um er að ræða vaktavinnu þar sem tryggður er rekstur kerfisins allan sólarhringinn. Við bjóðum upp á fjölbreytt og spennandi verkefni, mikla þjálfun og stuðning við starfsþróun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. verkfræði eða tæknifræði
- Er lausnamiðaður og góður teymisfélagi.
- Er með frumkvæði, skipulagshæfileika og áhuga á raforkukerfum.
- Býr yfir góðri hæfni í íslensku og ensku.
Fríðindi í starfi
- Skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og margt fleira.
- Stöðuga þjálfun og fræðslu til starfsþróunar.
- Starf sem skiptir máli fyrir samfélagið!
Auglýsing birt9. nóvember 2026
Umsóknarfrestur24. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í áhættustýringu – efnahagsáhætta og líkön
Arion banki

Sérfræðingur í rekstrar- og sjálfbærniáhættu
Arion banki

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar? Verkefnastjóri í endurbótadeild
Landsvirkjun

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

Tæknimaður/verkefnastjóri
Loftorka Reykjavík ehf.

Avionics / Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Mechanical Designer
Borealis Data Center ehf.

Electrical Designer
Borealis Data Center ehf.

Tæknifræðingur eða verkfræðingur sem vill sjá lausnir verða að veruleika
HD Iðn- og tækniþjónusta

Sérfræðingur í stofnkerfum
Míla hf

Hafðu stjórn á straumnum - sérfræðingur stjórnkerfa
Rarik ohf.