

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar?
Verkefnastjóri í endurbótadeild
Við hjá Landsvirkjun leitum að öflugum verkefnastjóra til að stýra fjölbreyttum verkefnum við endurnýjun og viðhald á raf- og vélbúnaði aflstöðva okkar.
Í starfinu færð þú tækifæri til að vinna að mikilvægum verkefnum sem stuðla að öruggum og hagkvæmum rekstri aflstöðva til framtíðar. Þú munt stýra verkefnum allt frá undirbúningi og hönnun til útboða og framkvæmda, í nánu samstarfi við reynda verkefnastjóra, sérfræðinga og verktaka.
Starfið tilheyrir endurbótadeild framkvæmdasviðs og er starfsstöðin í Katrínartúni 2 í Reykjavík.
Við hverju má búast?
- að verkefni séu unnin eftir hágæða verklagi með öryggismál í fyrirrúmi
- að vinna í fjölbreyttu teymi með reynslumiklum fagaðilum innan og utan fyrirtækisins
- að taka þátt í að þróa og innleiða lausnir sem lengja líftíma búnaðar og auka orkunýtingu
Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu sem nýtist í starfi?
- háskólamenntun á sviði iðn-, tækni- eða verkfræði
- reynslu af verkefnastjórnun eða teymisstjórnun í framkvæmdum
- þekkingu og reynslu af raf- og/eða vélbúnaði, hvort sem er í hönnun, rekstri eða viðhaldi
- þekking á orkuvinnslu, orkuflutningi eða skyldum iðnaði er kostur
- framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni og metnað til að vaxa í starfi
Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?
Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Verkefnastjóri í þessu starfi hefur bein áhrif á orkuvinnslugetu framtíðarinnar og fær tækifæri til að hafa langtímaáhrif á mikilvæg mannvirki. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga þinn á starfinu. Fyrirspurnir má senda á netfangið [email protected].
Íslenska










