TDK Foil Iceland ehf
TDK Foil Iceland ehf
TDK Foil Iceland ehf

TDK Foil Iceland ehf óskar eftir að ráða Rafmagnsverkfræðing

TDK Foil Iceland leitar að öflugum sérfræðingi til að leiða og þróa verkefni á sviði orkunýtingar og hagræðingar í framleiðsluferlum.

Um er að ræða spennandi framtíðarstarf þar sem verkfræðiþekking, gagnagreining og ný tækni á borð við gervigreind koma saman til að stuðla að sjálfbærari og skilvirkari framleiðslu. Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á að greina flókin framleiðsluferli, finna tækifæri til umbóta og leiða verkefni sem skila raunverulegum árangri í orkusparnaði.

Við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greina og bæta orkunýtingu í framleiðsluferlum.
  • Safna og greina framleiðslu- og orkugögn.
  • Leiða umbóta- og þróunarverkefni.
  • Innleiða gagnadrifnar lausnir og stuðla að sjálfbærni.
  • Samstarf við þverfagleg teymi innan fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í rafmagnsverkfræði eða sambærilega menntun.
  • Reynslu af ferlagreiningu, orkumálum eða framleiðsluumhverfi.
  • Reynslu af gagnagreiningu, t.d. í Excel, Python, MATLAB eða sambærilegum verkfærum.
  • Góða verkefnastjórnunarhæfni og getu til að vinna í þverfaglegu teymi.
  • Þekking á stýrikerfum, PLC, MES kerfum eða sambærilegum lausnum.
  • Gott vald á ensku í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur hádegismatur.
  • Öflugt starfsmannafélag
Auglýsing birt26. október 2026
Umsóknarfrestur10. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Krossanes 4, 603 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar